Samkvæmt úttektinni fjölgaði milljarðamæringum í dollurum talið í heiminum á síðasta ári um þrettán prósent og eru þeir nú 2043. Bill Gates er metinn á áttattíu og sex milljarða dollara og hefur auður hans aukist um ellefu milljarða dollara á einu ári. Í öðru sæti er fjárfestirinn Warren Buffet sem bætti sig um tæpa fimmtán milljarða og á alls rúma sjötíu og fimm milljarða.
Donald Trump Bandaríkjaforseti er á listanum en hann fellur þó töluvert á milli ára, eða um 220 sæti og hafnar í sæti númer 544. Hann þarf að gera sér að góðu að skrimta af þremur komma fimm milljörðum dollara.
Björgólf Thor Björgólfsson er einnig að finna á listanum en hann lendir í sæti númer 1161 og er metinn á 1,8 milljarða bandaríkjadala.
Í grein Forbes er farið yfir sögu Björgólfs sem var tíður gestur á téðum lista á árunum fyrir hrun. Hann hafi síðan næstum því misst aleiguna í hruninu en náð að vinna sig upp að nýju eftir að hafa gert flókna samninga við kröfuhafa sína. Í dag er pólska fjarskiptafyrirtækið Play sagt vera hans verðmætasta fjárfesting.
Í meðfylgjandi myndbandi frá Forbes má sjá þá sem verma tíu efstu sæti listans í ár.