Færa viðskiptin yfir í sparisjóðina eftir fréttir um Arion Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 21. mars 2017 13:07 Sparisjóðum hefur fækkað mikið á undanförnum árum og eru nú aðeins fjórir talsins. vísir/gva „
Það er óvenju mikil hreyfing núna. Við höfum verið svolítið mikið á haus og því ekki tekið saman tölurnar, en finnum greinilega að það er mikil hreyfing á fólki,“ segir Gerður Sigtryggsdóttir, sparissjóðsstjóri í Sparisjóði Suður-Þingeyinga. Nokkurrar óánægju hefur gætt vegna fregna um kaup fjögurra fjárfesta á 30 prósenta hlut í Arion banka því ekki hefur verið upplýst um raunverulega eigendur, en Arion banka er skylt að upplýsa hverjir standa að banki kaupunum í þessari viku.Vilja færa viðskipti sín annað Í ljósi þessa hefur umræða verið um að fólk hyggist flytja viðskipti sín yfir til sparisjóðanna, sem nú eru fjórir talsins, og allir staðsettir á landsbyggðinni. Kristinn Hrafnsson, blaðamaður og fyrrverandi talsmaður Wikileaks, upplýsti í gær um að hann ætli að færa viðskipti sín annað. Þá veltir Stefán Pálsson sagnfræðingur því fyrir sér að snúa aftur í sparisjóðinn eftir að hafa verið í viðskiptum við Arion banka, þar áður Kaupþing og þar áður Búnaðarbankann, frá átján ára aldri. Í ummælum við þræði Kristins og Stefáns má merkja nokkurn áhuga á því að flytja viðskipti sín til sparisjóðanna. Félagsráðgjafinn og stjórnmálakonan Björk Vilhelmsdóttir hefur sömuleiðis í hyggju að segja skilið við Búnaðarbankann, nú Arion banka, eftir að hafa verið í viðskiptum við hann frá unga aldri. Gerður, sem hefur aðsetur í útibúi Sparisjóðs Suður-Þingeyinga á Laugum, segir fjölmargar fyrirspurnir hafa borist síðustu daga, bæði símleiðis og í gegnum tölvupóst. Öllu færri hafi komið í afgreiðsluna, enda komi fyrirspurnirnar alls staðar að af landinu. Aukningin virðist þó ekki mælanleg í öðrum sparisjóðum, en sparisjóðsstjórar hinna þriggju bankanna segjast ekki hafa fundið fyrir miklum vexti undanfarna daga – en að vöxturinn hafi verið nokkuð jafn á síðustu árum. Þeir segjast hins vegar allir fagna frekari viðskiptum.Gerður Sigtryggsdóttir segir starfsfólk bankans á haus þessa dagana, en tekur fram að um sé að ræða viðbótarverkefni sem hún sé afar þakklát fyrir.Keyptu hlut í Arion fyrir tæplega 50 milljarða Greint var frá því um helgina að Goldman Sachs, ásamt þremur alþjóðlegum fjárfestingarsjóðum, hefðu keypt 30 prósenta hlut í Arion banka af Kaupþingi eignarhaldsfélagi fyrir samtals 48,8 milljarða króna. Í kjölfar þessa hafa margir kallað eftir upplýsingum um hverjir standa að baki þessum fyrirtækjum. Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra sagði á Alþingi að það sé algjörlega óviðunandi fyrir almenning að fá ekki þessar upplýsingar, og sagðist hafa haft samband við forstjóra Fjármálaeftirlitsins vegna málsins. Jón Þór Sturluson, aðstoðarforstjóri FME, sagði svo í samtali við RÚV í gær að Arion banka væri skylt að greina frá raunverulegum eigendum innan fjögurra daga. Sparisjóðum hefur fækkað mikið á síðustu árum og eru nú aðeins fjórir talsins. Það eru Sparisjóður Suður-Þingeyinga, Sparisjóður Austurlands, Sparisjóður Strandamanna og Sparisjóður Höfðhverfinga. Sparisjóðirnir voru yfir tuttugu talsins um síðustu áramót.
Tengdar fréttir Hlutum Goldman og erlendu sjóðanna í Arion fylgir ekki atkvæðisréttur Kaupum bandaríska fjárfestingabankans Goldman Sachs og vogunarsjóðanna Taconic Capital, Attestor Capital og Och-Ziff Capital á samanlagt um 29,2 prósenta hlut í Arion banka fylgir ekki atkvæðisréttur að svo stöddu. 20. mars 2017 15:15 Umfang vogunarsjóðanna kom lífeyrissjóðunum á óvart Óljóst er hver aðkoma lífeyrissjóðanna verður að Arion banka eftir sölu á hlut til vogunarsjóða. Forsvarsmenn lífeyrissjóðanna endurmeta stöðu sína í kjölfar fregnanna. 21. mars 2017 06:00 Sigmundur Davíð segir vogunarsjóðina ekki kaupa Arion til að innleiða ný vinnubrögð í bankastarfsemi Hann spyr hver sé raunverulegur tilgangur kaupanna og efast um að þau sé gerð með hagsmuni íslensks samfélags að sjónarmiði. 20. mars 2017 19:49 Lilja boðar til fundar vegna Arion Fundað verður með fulltrúum Fjármálaeftirlitsins og Höskuldi Ólafssyni bankastjóra Arion banka. 20. mars 2017 10:20 Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira
Hlutum Goldman og erlendu sjóðanna í Arion fylgir ekki atkvæðisréttur Kaupum bandaríska fjárfestingabankans Goldman Sachs og vogunarsjóðanna Taconic Capital, Attestor Capital og Och-Ziff Capital á samanlagt um 29,2 prósenta hlut í Arion banka fylgir ekki atkvæðisréttur að svo stöddu. 20. mars 2017 15:15
Umfang vogunarsjóðanna kom lífeyrissjóðunum á óvart Óljóst er hver aðkoma lífeyrissjóðanna verður að Arion banka eftir sölu á hlut til vogunarsjóða. Forsvarsmenn lífeyrissjóðanna endurmeta stöðu sína í kjölfar fregnanna. 21. mars 2017 06:00
Sigmundur Davíð segir vogunarsjóðina ekki kaupa Arion til að innleiða ný vinnubrögð í bankastarfsemi Hann spyr hver sé raunverulegur tilgangur kaupanna og efast um að þau sé gerð með hagsmuni íslensks samfélags að sjónarmiði. 20. mars 2017 19:49
Lilja boðar til fundar vegna Arion Fundað verður með fulltrúum Fjármálaeftirlitsins og Höskuldi Ólafssyni bankastjóra Arion banka. 20. mars 2017 10:20