Ungir karlmenn ofbeldisfullir í miðbænum um helgar Benedikt Bóas skrifar 10. mars 2017 07:00 Mörg brot áttu sér stað frá miðnætti til klukkan 7. vísir/daníel
Árið 2016 var tilkynnt um 283 líkamsárásir í miðborg Reykjavíkur. Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafa ekki borist jafn fáar tilkynningar á einu ári frá því árið 2011 þegar tilkynnt var um 261 brot. Flest þessara ofbeldisbrota koma upp í tengslum við skemmtanalífið í miðborginni um helgar. Um það bil tvö af hverjum þremur tilkynntum ofbeldisbrotum árið 2016 áttu sér stað frá miðnætti til klukkan 7 aðfaranótt laugardags og sunnudags og voru tæp 80 prósent þessara brota skráð inni á skemmtistöðum eða utandyra á þessu svæði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. Þar segir enn fremur að karlmenn séu um 90 prósent gerenda í ofbeldismálum í miðborginni og um 80 prósent brotaþola. Tæplega helmingur grunaðra var á aldrinum 21 til 30 ára og um helmingur brotaþola var á sama aldri. Ekki er algengt að sömu aðilar séu grunaðir í mörgum ofbeldismálum á sama árinu. Um níu prósent grunaðra báru ábyrgð á tveimur eða fleiri ofbeldisbrotum árið 2016 en tæplega þrjú prósent báru ábyrgð á þremur eða fjórum málum. Þegar á heildina er litið hefur ofbeldisbrotum á höfuðborgarsvæðinu öllu fjölgað frá árinu 2011. Það ár bárust lögreglunni 679 tilkynningar en í fyrra voru tilkynningarnar 1.169. Þessi fjölgun skýrist af breyttu verklagi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í heimilisofbeldismálum sem tók gildi í janúar 2015. Unnið er að uppsetningu á um 30 nýjum eftirlitsmyndavélum í miðborginni. Verður lögreglan með aukið eftirlit um helgar til að auka öryggi í borginni.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Hormússund sagt lokað á ný Erlent Önnur lægð nálgast landið Veður Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Fleiri fréttir Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Óvissa, ólögleg sala á áfengi og ósk um ný hljóðfæri Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Fyrsta pallborð fyrir kosningarnar í maí: Mosfellsbær á sviðið Dönsk þyrla með franskri herflutningavél til Íslands Bandaríkjaforseti gangi fram líkt og götustrákur Á brattann að sækja fyrir aðildarsinna Gífurlegir hagsmunir í húfi ef tæknin kemst í rangar hendur Vísindi á vordögum: Af hverju er offita enn þá vandamál? Hættuleg framþróun gervigreindarinnar, vopnahlé og kosningapallborð Töluverð skautun í málefnum Ísraels og Palestínu Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Tveir fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði í bílskúr Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust var í hluta Seltjarnarness og Vesturbæjar Sjá meira