Vopnuð átök milli gengja í Stokkhólmi Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 10. mars 2017 07:00 Morðalda gengur nú yfir Stokkhólm. Lögreglan þar hefur beðið um aðstoð. NORDICPHOTOS/AFP
Lögreglan í Stokkhólmi hefur beðið um aðstoð frá öðrum lögregluumdæmum í Svíþjóð vegna vopnaðra átaka milli glæpagengja í borginni. Átök eru milli sex glæpagengja í norðurhluta borgarinnar og sex í suðurhlutanum. Það sem af er þessu ári hafa átta manns verið skotnir til bana í 17 skotárásum og 14 hafa særst, samkvæmt frétt sænska sjónvarpsins. Að undanförnu hefur handsprengjum verið fleygt mörgum sinnum að fasteignum og bílum. Sænska sjónvarpið hefur það eftir fulltrúa Stokkhólmslögreglunnar að glæpagengin séu í góðu sambandi við vopnasala á Balkanskaga sem útvegi þeim handsprengjur. Fjöldi skotvopna er í umferð og nýlega hefur lögreglan lagt hald á 17 Kalashnikov-riffla. Lögreglan í Stokkhólmi rannsakar nú alls 47 morð og 57 morðtilraunir. Talið er að í mörgum tilfellum séu morðin í tengslum við fíkniefnaviðskipti auk þess sem um hefndaraðgerðir sé að ræða. Lögreglan rannsakar jafnframt önnur afbrot í Stokkhólmi sem tengjast glæpagengjum. Um er að ræða 436 alvarleg afbrot, eins og til dæmis fjárkúgun og mannrán. Liðsauki mun berast frá Gautaborg vegna morðöldunnar í Stokkhólmi. Gautaborgarlögreglan hefur mikla reynslu af átökum glæpagengja undanfarin ár. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Hormússund sagt lokað á ný Erlent Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Erlent Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Erlent Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Innlent Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Innlent Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Erlent Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Innlent Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Innlent Fleiri fréttir Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði Sjá meira