„Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Agnar Már Másson skrifar 5. apríl 2026 12:27 Donald Trump, Bandaríkjaforseti, er ekki sáttur. AP/Julia Demaree Nikhinson „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar, annars fáið þið að búa í helvíti,“ skrifar Donald Trump Bandaríkjaforseti í færslu á samfélagsmiðla. Hann ýjar að því að sprengja orkuver og brýr í Íran á þriðjudag, opni Íranir ekki Hormússund á ný. „
Bíðið bara! Dýrð sé Allah,“ bætir Trump við í færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann boðar „virkjanadag“ og „brúardag“ í Íran á þriðjudag, en hann hefur hótað því að ráðast á orkuinnviði Írana ef þeir opna ekki Hormússund á ný, sem er ein helsta flutningsleið olíu í heimi. Færsla Trumps frá því í dag.Truth „Það verður engu líkt!!!“ skrifar hann. Í gær gaf Trump Írönum 48 klukkustunda frest til þess að opna sundið eða semja um frið, annars færi „allt til fjandans“ í Íran, þar sem stríð hefur geisað í rúman mánuð milli Bandaríkjanna og Ísrael annars vegar og Írana hins vegar. Frá því að Bandaríkjamenn og Ísraelsmenn hófu árásir á Írani í lok febrúar hafa Íranir hindrað umferð olíuskipa um sundið, sem hefur haft veruleg áhrif á olíuverð í heiminum. Íranski hershöfðinginn Ali Abdollahi Aliabadi gaf hótun Trumps lítinn gaum í gær og sagði hana bera merki um „ráðaleysi, taugaveiklun, óstöðugleika og heimsku“. Trump hefur hótað árásum þessu áður á síðustu mánuðum og framlengt þennan frest tvisvar. Hann framlengdi hann síðast um tíu daga þann 27. mars með vísan til þess að árangur hefði náðst í viðræðum milli Írana og Bandaríkjamanna. Færsluna birtir forsetinn skömmu eftir að Bandaríkjaher tókst að bjarga hermanni sem kastaði sér út úr herflugvél á föstudag, þegar vélin var skotin niður af írönskum hersveitum. Trump sagði þá að hermaðurinn væri heill á húfi, þó að hann hefði hlotið einhver sár.
Donald Trump Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íran Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Fleiri fréttir Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Sjá meira