Borgarstjóri kynnir lausnir fyrir heilbrigðisráðherra Benedikt Bóas skrifar 11. mars 2017 07:00 Fráflæðisvandi LSH er mikill. Kostnaður, beinn og óbeinn, vegna hans er 4,5 milljarðar á ári. vísir/vilhelm
Brýnt er að fara tafarlaust í frekari uppbyggingu hjúkrunarrýma í Reykjavík til að mæta brýnni þörf og framtíðarþörf. Þetta kemur fram í bréfi sem Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sendi Óttari Proppé heilbrigðisráðherra í byrjun mars. Dagur segir borgina hafa lóðir til reiðu fyrir byggingu hjúkrunarheimila og fyrir viðbyggingarmöguleika. Dagur leggur til að settur verði á fót sameiginlegur starfshópur til að meta þróun og þjónustuþyngd til framtíðar og hvernig hægt sé að bregðast við. Dagur segir að ekki hafi verið opnuð ný hjúkrunarrými í borginni síðan 2010 þegar Mörkin tók til starfa. Þó sé búið að samþykkja byggingu 105 rýma hjúkrunarheimilis við Sléttuveg sem ráðgert er að opna árið 2019. Kostnaður, beinn og óbeinn, vegna fráflæðisvanda LSH sé 4,5 milljarðar á ári miðað við árið 2015.Dagur B. Eggertssonvísir/ernirSé kostnaður við að hafa sjúklinga inniliggjandi á deildum LSH í bið eftir hjúkrunarrými dreginn frá kostnaði við að hafa þessa sömu sjúklinga á hjúkrunarheimili fáist samfélagskostnaður upp á 3,4 milljarða. Vitnar Dagur í tölur frá Hagfræðideild HÍ. „Í núverandi stöðu er brýn þörf fyrir hendi og samfélagslegur kostnaður vegna fráflæðisvanda LHS er mikill. Ákvarðanir um næstu skref og uppbyggingu úrræða geta ekki beðið að mati borgarinnar,“ segir í bréfinu. Hægt væri að nýta þessa 3,4 milljarða betur og leggur Dagur til þrjár hugmyndir. Sú fyrsta er uppbygging hjúkrunarheimila. Lóð sé tilbúin norðan við Borgarholtsskóla og hefur Hjúkrunarheimilið Eir/Skjól lýst yfir áhuga á að reka það með 120-150 rýmum. Viðbótarrými og ný rými við Sóltún gætu verið alls 107. Þá sé Skógarbær reiðbúinn að fjölga rýmum um 30-40. Þessi 280 rými myndu kosta 2,4 milljarða á ári.Óttar Proppé, heilbrigðisráðherra.vísir/ernirÞá bendir Dagur á sérhæfða þjónustu við aldraða í heimahúsi, 80 ára og eldri. Kostnaðurinn er metinn 8,5 milljónir á einstakling en dvöl á hjúkrunarheimili kostar 9,9 milljónir og er ekki byggingarkostnaður eða leiga inni í tölunum. Að síðustu bendir Dagur á að framlag til heimahjúkrunar hafi staðið í stað síðan borgin tók við henni árið 2009. Í bréfinu bendir Dagur á að samkvæmt greiningu efnahagssviðs SA hafi Norðurlöndin síðustu ár lagt aukna áherslu á að færa öldrunarþjónustu og aðra langtímaumönnun yfir í minna fjárfrek úrræði eins og heimahjúkrun. Ísland sé ekki að taka þátt í þeirri þróun. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Hormússund sagt lokað á ný Erlent Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Erlent Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Erlent Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Innlent Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Innlent Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Erlent Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Innlent Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Innlent Fleiri fréttir Óvissa, ólögleg sala á áfengi og ósk um ný hljóðfæri Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Fyrsta pallborð fyrir kosningarnar í maí: Mosfellsbær á sviðið Dönsk þyrla með franskri herflutningavél til Íslands Bandaríkjaforseti gangi fram líkt og götustrákur Á brattann að sækja fyrir aðildarsinna Gífurlegir hagsmunir í húfi ef tæknin kemst í rangar hendur Vísindi á vordögum: Af hverju er offita enn þá vandamál? Hættuleg framþróun gervigreindarinnar, vopnahlé og kosningapallborð Töluverð skautun í málefnum Ísraels og Palestínu Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Tveir fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði í bílskúr Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust var í hluta Seltjarnarness og Vesturbæjar Skipverjar og hafnarverkamenn boða verkfall Harma að íbúar hafi verið í hættu við Fannborg Hótun um útrýmingu, ný kosningaspá og óvenjulegt þrumuveður Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Sjá meira