Sumarveðrið varð Áströlum dýrkeypt Guðsteinn Bjarnason skrifar 11. mars 2017 07:00 Gróðureldar eyðilögðu tugi heimila í austurhluta Ástralíu. Nordicphotos/AFP
Sumarið í Ástralíu varð það heitasta og blautasta síðan mælingar hófust. Sums staðar fór hitinn yfir 35 stig 54 daga í röð. Alls voru meira en 200 veðurmet slegin sumarmánuðina þrjá, sem þar eru desember, janúar og febrúar. Þetta kemur fram í skýrslu Loftslagsráðs Ástralíu, þar sem fullyrt er að Ástralíubúar hafi aldeilis fengið að kenna á loftslagsbreytingum af mannavöldum þetta sumarið. Skýrslan nefnist Angry Summer, eða reiða sumarið.Mikill munur var þó á veðrinu eftir því hvar í Ástralíu borið er niður. Í austurhluta álfunnar voru miklar hitabylgjur, steikjandi heitir dagar og mikið um gróðurelda. Í vesturhlutanum var hins vegar úrhellisrigning með miklum flóðum. Meðal annars er nefnt að íbúar borgarinnar Adelaide hafi ekki upplifað meiri hita á jóladag í sjötíu ár, en nú í sumar komst hitinn þar upp í 41,3 gráður á Celsius. Og í Sydney varð hitinn meiri en nokkru sinni hefur mælst, eða 2,8 stigum hærri en meðaltalið. Fullyrt er að þessi þróun eigi eftir að halda áfram. Búast megi við meiri öfgum í veðri með tíðari hitabylgjum og nýjum hitametum. Alls gerðist það á að minnsta kosti nítján stöðum í Ástralíu að hitinn komst yfir 40 stig fleiri daga en áður hefur mælst, og er þá miðað við að minnsta kosti 40 ára tímabil. Alvarlegasta hitabylgjan þetta sumarið hófst 31. janúar og stóð til 12. febrúar. Þessir miklu hitar kosta þjóðfélagið stórfé. Enn eigi að vísu eftir að meta kostnaðinn af sumrinu sem var að líða, en vitað sé að sumarið 2013 til 2014 hafi kostað ástralska skattborgara um það bil átta milljarða dala, eða nærri 650 milljarða króna. Hitabylgjurnar í Ástralíu hafa veruleg áhrif á heilsu margra. Loftslagsráð Ástralíu telur að á tímabilinu 1890 til 2013 hafi hitabylgjur kostað um 2.900 manns lífið, en það eru fleiri dauðsföll en urðu samtals af völdum gróðurelda, fellibylja, jarðskjálfta, flóða og ofsaveðurs á þessu sama tímabili.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Hormússund sagt lokað á ný Erlent Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Erlent Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Erlent Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Innlent Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Innlent Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Erlent Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Innlent Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Innlent Fleiri fréttir Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði Sjá meira