Sandra María: Glöð úr því sem komið var Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. mars 2017 15:30 Sandra María Jessen í leik með íslenska landsliðinu. Vísir/Anton
Sandra María Jessen, leikmaður Þórs/KA, er vongóð að hún verði komin aftur á fulla ferð eftir þrjá mánuði en hún varð fyrir alvarlegum hnémeiðslum á dögunum. Hún meiddist í leik með íslenska landsliðinu á Algarve-mótinu á Portúgal á dögunum og gæti það farið svo að hún missi af EM vegna meiðslanna. Fram undan er þó kapphlaup við tímann en mótið hefst um miðjan júlí. Sandra María sleit aftara krossaband og verður af þeim sökum frá í að minnsta kosti í þrjá mánuði. Góðu fréttirnar eru þó þær að hún þarf ekki að fara í aðgerð. „Liðþófar og liðbönd sluppu alveg hjá mér,“ sagði Sandra María í samtali við Akraborgina í dag. „Ég get því leyft mér að vera nokkuð glöð með niðurstöðuna úr því sem komið var.“ Hún segir að stefnan sé nú að gefa beinmarinu tíma til að jafna sig og svo taki endurhæfing við, eftir um sex vikur. Sandra María sleit fremra krossband í hinu hnénu árið 2014 og fór þá í aðgerð. Sami læknir mælti gegn því að hún færi í aðgerð nú. „Hann sagði mér að nú til dags takist langflestum íþróttamönnum að sleppa við aðgerð eftir slík meiðsli og það hái þeim ekkert,“ sagði hún. Viðtalið allt við Söndru Maríu verður spilað í heild sinni í Akraborginni á X-inu í dag en þátturinn hefst klukkan 16.00.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti „Hefurðu enga sómakennd?“ Fótbolti Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember Körfubolti Hefur Ben Simmons náð botninum? Körfubolti Verstappen heimsmeistari fjórða árið í röð Formúla 1 Ætla flokkarnir að reisa ný heimili fyrir landsliðin? Sport Áður óbirt efni frá heimsókn landsliðsins í vinsælasta þátt Bandaríkjanna Körfubolti Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn Russell á ráspól í fyrramálið Formúla 1 Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Fótbolti Fleiri fréttir Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Hermann Hreiðars tekur við HK Sjá meira