Festingin verði aftur blá í Kína Jóhann Óli Eiðsson skrifar 6. mars 2017 07:00 Ferðalangur með öndunargrímu á Torgi hins himneska friðar í lok janúar. Mengun í Peking-borg var mikil á köldustu dögum mánaðarins. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Ríkisstjórn Kína stefnir að því að bæta andrúmsloft í landinu með því að draga úr kolabrennslu til rafmagnsframleiðslu og húshitunar. Í ofanálag verða seglin einnig dregin saman í ríkisrekstri á komandi ári. Þetta kom fram í stefnuræðu forsætisráðherrans Li Keqiang þegar kínverska þingið kom saman í gær. Loftmengun er mikið vandamál í Kína sérstaklega yfir vetrarmánuðina þegar meiri þörf er á því að kynda hús. Reglulega berast myndir af fólki á gangi um stræti stórborga með grímur fyrir vitum sér til að forðast það að anda menguðu loftinu að sér. Ástandið getur verið sérstaklega slæmt á blíðviðrisdögum en þá er lítil ferð á reykjarmekkinum.Xi Jinping, forseti Kína, og Li Keqiang áður en sá síðarnefndi flutti stefnuræðu sína. VÍSIR/EPA„Við munum gera himininn bláan á nýjan leik,“ sagði Li meðal annars fyrir framan 3.000 þingmenn. Á næsta ári stefnir ríkisstjórnin að því að bæta núverandi kola- og sorpbrennslur til að draga úr losun mengandi efna. Þá verður aukið fjármagn sett í endurnýjanlega orkugjafa. Í ræðunni kom Li einnig inn á að stefnt væri að tæplega 6,5 prósenta vexti hagkerfisins í ár. Í fyrra var stefnt að 6,5 til sjö prósenta vexti sem endaði að lokum í 6,7 prósentum. Sá árangur náðist með miklum útlánum, sprengingu í húsnæðismálum og milljarða fjárútgjöldum hins opinbera. Í ár er stefnt að því að kæla húsnæðismarkaðinn, draga úr útlánum og eyðslu ríkissjóðs. Stjórnvöld verða því að treysta á framtak einkaaðila og neyslu heimila landsins. „Ástandið bæði innan- og utanlands þýðir að við þurfum að vera betur í stakk búin til að takast á við flóknari og alvarlegri aðstæður en við höfum þurft hingað til,“ sagði Li. Hann bætti við að slíkt væri uppi á teningnum á meðan stór hagkerfi reyndu að draga úr hnattvæðingu og halda að sér höndum. Kína er annað stærsta hagkerfi heims sé litið til landsframleiðslu. Vöxtur þess hefur verið ævintýralegur en undir lok 20. aldarinnar og til ársins 2015 var meðal hagvöxtur um tíu prósent ár hvert. Var það hið allra mesta sem þekktist í heiminum þar til hægði á vextinum í fyrra. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.Vísir/EPA
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Hormússund sagt lokað á ný Erlent Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Erlent Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Erlent Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Innlent Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Innlent Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Erlent Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Innlent Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Innlent Fleiri fréttir Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði Sjá meira