Fegin að vera laus við Wilders Guðsteinn Bjarnason skrifar 7. mars 2017 07:00 Frá sjónvarpskappræðunum á sunnudag þar sem Geert Wilders var fjarri góðu gamni. vísir/epa
Kosningabaráttan í Hollandi er komin á fullan skrið, enda þingkosningar í næstu viku, miðvikudaginn 15. mars. Málefni innflytjenda hafa verið mest áberandi í kosningabaráttunni, einkum vegna þess að Geert Wilders, leiðtogi Frelsisflokksins, notar hvert tækifæri til að vara við útlendingum, einkum þó múslimum sem hann óttast mjög. Það þóttu því töluverð viðbrigði á sunnudaginn, þegar leiðtogar stjórnmálaflokkanna mættust í sjónvarpskappræðum, að varla var minnst á málefni innflytjenda. Ástæðan var sú að Wilders var fjarri góðu gamni. Hann ákvað að taka ekki þátt í þessum kappræðum, sagði að sér litist ekkert á þær. Hinir þátttakendurnir virtust reyndar ósköp fegnir. Nú gafst loksins tóm til að ræða önnur málefni í hollenskum stjórnmálum. Frelsisflokki Wilders hefur lengi gengið mjög vel samkvæmt skoðanakönnunum, verið spáð allt upp í eða jafnvel yfir tuttugu prósentum atkvæða, eða álíka miklu og Frjálslynda flokknum, flokki Marks Rutte forsætisráðherra hefur verið spáð. Flokkarnir tveir hafa skipst á um að vera í efsta sæti í skoðanakönnunum, þótt Frjálslyndi flokkurinn hafi oftar vinninginn. Aðrir flokkar hafa þó útilokað samstarf við Frelsisflokkinn, þannig að jafnvel þótt hann fái flest atkvæði eru vart nokkrar líkur á því að hann verði með í ríkisstjórn. Ótti Wilders við múslima nær sífellt nýjum hæðum. Nú síðast sagðist hann vilja láta banna Kóraninn í Hollandi: „Ég myndi frekar vilja að við værum alls ekki með Kóraninn, rétt eins og við höfum að minnsta kosti gert Mein Kampf útlæga hér í Hollandi,“ sagði hann í viðtali við fréttavefinn Euronews, en Mein Kampf er hin alræmda bók Adolfs Hitlers, Barátta mín.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Hormússund sagt lokað á ný Erlent Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Erlent Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Erlent Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Innlent Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Innlent Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Erlent Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Innlent Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Innlent Fleiri fréttir Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði Sjá meira