Lýsa yfir hungursneyð í Suður-Súdan Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 21. febrúar 2017 06:45 Agop Manut er ellefu mánaða og alvarlega vannærður. vísir/afp
Hungursneyð hefur verið lýst yfir í Unity-ríki Suður-Súdans. Er það í fyrsta sinn í sex ár sem lýst er yfir hungursneyð í heiminum. Ríkisstjórn landsins sem og Sameinuðu þjóðirnar greina frá því að um hundrað þúsund Suður-Súdanar séu við það að svelta. Þá séu milljónir á barmi hungursneyðar. Góðgerðarsamtök á svæðinu og á heimsvísu hafa varað við því að hungursneyðin brjótist út fyrir mörk ríkisins ef ekki verður skorist í leikinn. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) segir nærri fimm milljónir líða sáran skort. Orsökin er sögð borgarastyrjöldin sem nú hefur staðið yfir í rúm þrjú ár og efnahagshrun sem landið hefur gengið í gegnum. Einnig hefur verið varað við hungursneyð í Jemen, Sómalíu og norðausturhluta Nígeríu undanfarin misseri en Suður-Súdan er fyrsta ríkið í þessum hópi til að lýsa formlega yfir hungursneyð. Áður hefur hungursneyð verið lýst yfir á svæðinu sem nú kallast Suður-Súdan. Það var árið 1998, áður en svæðið fékk sjálfstæði frá Súdan. Hungursneyð er formlega lýst yfir þegar að minnsta kosti tuttugu prósent heimila líða sáran skort og geta lítið við því gert, vannæring hrjáir meira en þrjátíu prósent íbúa og fleiri en tveir af hverjum tíu þúsund deyja úr hungri á degi hverjum.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Innlent Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Innlent Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Innlent Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Erlent Á brattann að sækja fyrir aðildarsinna Innlent Gífurlegir hagsmunir í húfi ef tæknin kemst í rangar hendur Innlent Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Erlent Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Innlent Fleiri fréttir Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Mafíuforingi á flótta handtekinn í lúxusvillu á Amalfi-strönd Ekki þeir einu sem leita flugmannsins Ekki vopnahlé um páskana heldur regn sjálfsprengidróna Sjá meira