Ubisoft gaf bardagakerfi For Honor nafnið: „The Art of Battle“ og það á vel við. (Smá kennslumyndband) Öll möguleg brögð eiga sér mótsvar og það er nauðsynlegt að vera vel á tánum og að vera óútreiknanlegur í sókn. Gleymist vörnin í augnablik er mest allur hluti lífs spilara farinn eða þeir dauðir.
Það þýðir lítið að ýta eins marga takka og hægt er á eins skömmum tíma og spilarar ráða við. Sú leið liggur eingöngu í átt að tapi og dauða. Það skiptir sérstaklega miklu máli að vanda sig í einvígum.
Spilarar þurfa einnig að passa sig á umhverfi sínu, þar sem það getur reynst erfitt að sveifla stórum vopnum í þröngum göngum og að hægt er að kasta fólki á gadda á veggjum og fram af brúnum.
Það er bara verst hvað ég er lélegur í þessu öllu saman.
Sagan virkar þó best til að læra á mismunandi hetjur For Honor og er í raun að mestu þjálfun fyrir fjölspilunina.
Fjölspilunarmöguleikarnir eru fimm, en þeir snúast allir um að annað hvort drepa óvini í einvígum eða allt að átta manna bardögum), eða drepa alla óvini og halda ákveðnum svæðum á meðan liðin safna stigum til þess að vinna orrusturnar. Sá möguleiki heitir Dominion.

Bardagakerfi For Honor er hins vegar svo gott að það gerist alltaf eitthvað nýtt og aðstæður bardaganna sem maður lendir í eru aukaatriði. Maður lendir þó í ákveðnum vandræðum með bardagakerfið þegar maður mætir fleiri en einum andstæðingi í einu.
Einhverjar fregnir hafa borist af vefþjónavandræðum hjá Ubisoft og að fólk hafi lent í vandræðum við að tengjast leikjum. Ég slapp þó blessunarlega við slíkt vesen.
Í For Honor eru tólf mismunandi hetjur sem skipt er niður á fylkingarnar þrjár. Hetjurnar eru svipaðar á milli fylkinga en bjóða þó upp á mismunandi spilunarmöguleika, bardaga og taktík. Hægt er að uppfæra hetjurnar með betri búnaði en það virkar eingöngu í Dominion. Ekki í einvígum.
Það er gaman. Þá er mjög gaman að spila For Honor með vinum sínum.
Það er líka eitthvað sem er svo rosalega gaman við að víkingar, riddarar og samurai séu að berjast sín á milli. Eins og eitthvað sem maður lék sér með sem krakki. Útlit leiksins, hljóð og talsetning virkar allt til þess að uppfylla einhvers konar æskuóskir og þetta kemur bara frábærlega út.