Hollande sendir Trump tóninn 25. febrúar 2017 16:30 Francois Hollande og Donald Trump. Vísir/EPA
Francois Hollande, forseti Frakklands, hefur svarað ummælum Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, um að „París sé ekki lengur París“ fullum hálsi. Trump sagði einnig í ræðu í gær að vinur sinn „Jim“ þorði ekki lengur að fara með fjölskyldu sína til Frakklands vegna hryðjuverkaárása þar. Hann gagnrýndi hvernig ríki Evrópu hafa brugðist við hryðjuverkaárásum. Rúmlega 230 manns hafa látið lífið í mörgum hryðjuverkaárásum í Frakklandi frá 2015 og sama ár lýsti ríkið yfir neyðarástandi. Það veitir ríkinu auknar heimildir samkvæmt lögum til að berjast gegn hryðjuverkasamtökum og hefur neyðarástandið verið framlengt nokkrum sinnum og stendur það enn yfir.Hollande sagði að Trump eigi að veita bandamönnum Bandaríkjanna stuðning. Það sé mikilvægt að berjast í sameiningu gegn hryðjuverkum og að ekki sé gott að ögra bandamönnum sínum. „Ég myndi ekki gera það gagnvart Bandaríkjunum og ég hvet forseta Bandaríkjanna að gera það ekki gagnvart Frakklandi,“ sagði Hollande í dag samkvæmt frétt Reuters. Hann skaut þó á Bandaríkin og sagði að í Frakklandi hefðu íbúar ekki jafn greiðan aðgang að skotvopnum og í Bandaríkjunum. Í Frakklandi væru menn ekki að hefja skothríð í mannmergð til þess eins að skapa dramatík og sorg.
Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Íslensk kona í haldi: Hótelherbergi á Tenerife þakið blóði Innlent Boeing þota hrapaði í garð íbúðarhúss Erlent Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Innlent Dagur hvetur alla Sjálfstæðismenn til að strika sig út Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Sjálfstæðismaður vill ekki að sitt fólk striki Dag út Innlent Frægasti köttur landsins týndur Innlent Þrír menn handteknir eftir að þeir ruddust inn á heimili Innlent Ræktar banana í Hafnarfirði með góðum árangri Innlent „Árleg æfing í vonbrigðum“ Innlent Fleiri fréttir Ólöglegir og löglegir innflytjendur afar uggandi um framtíð sína Óvæntar niðurstöður í fyrri umferð kosninga í Rúmeníu Scholz verður kanslaraefni Jafnaðarmanna Konur í mestri hættu innan veggja heimilisins Boeing þota hrapaði í garð íbúðarhúss Hezbollah svarar Ísrael með umfangsmikilli loftárás Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Vargöldin á Haítí versnar hratt Tryggja þróunarríkjum 42 billjónir á ári með samkomulagi á COP29 Uppnám á COP29 er fulltrúar þjóða strunsuðu út Vill einn af höfundum „Project 2025“ við stjórn fjárlagaskrifstofu Jöfnuðu fjölbýlishús við jörðu um miðja nótt Hakkarar komu sér fyrir í kerfum fjölda fjarskiptafyrirtækja Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Leita móður ungabarns sem fannst látið á víðavangi Styrkja loftvarnir Norður-Kóreu fyrir hermenn og vopn Bolsonaro og félagar kærðir fyrir valdaránstilraun Trump-liðar heita aðgerðum gegn sakamáladómstólnum Útlit fyrir að Scholz leiði flokk sinn til kosninga þrátt fyrir óvinsældir Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Kostnaðurinn við krýningu Karls konungs 13 milljarðar króna Pam Bondi kemur í stað Matt Gaetz Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Gaetz ætlar sér ekki að verða dómsmálaráðherra Tóku tíu úkraínska fanga af lífi Meina fyrstu trans þingkonunni að fara á kvennaklósettið Fyrsta nærmyndin af stjörnu utan Vetrarbrautarinnar Sjá meira