Enn einn stórleikur Westbrook í sigri á meisturunum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. febrúar 2017 08:00 Russell Westbrook í leiknum gegn Cleveland í nótt. Vísir/AP
Oklahoma City vann meistarana í Cleveland, 118-109, í NBA-deildinni í nótt. Russell Westbrook átti enn einn stórleikinn og náði sinni 26. þreföldu tvennu. Westbrook var með 29 stig, tólf fráköst og ellefu stoðsendingar en þetta er 63. þrefalda tvennan hans á ferlinum. Þetta veit á gott fyrir viðureign Oklahoma City gegn Kevin Durant, fyrrum liðsmanni liðsins, og félögum í Golden State Warriors á laugardag. Kyrie Irving skoraði 28 stig fyrir Cleveland, LeBron James var með átján og Kevin Love fimmtán fyrir Cleveland sem hafði unnið fjóra leiki í röð fyrir viðureignina í nótt. Cleveland er sem fyrr í efsta sæti austurdeildarinnar en Oklahoma City er nú í sjöunda sæti vesturdeildarinnar. Boston náði að saxa á forystu Cleveland á toppnum í austrinu með sigri á Portland, 120-111. Isaiah Thomas skoraði 34 stig fyrri Boston, þar af fimmtán í fjórða leikhluta. Boston hefur unnið 34 leiki á tímabilinu og er nú tveimur sigrum á eftir Cleveland. Houston vann Charlotte, 107-95, þar sem James Harden skoraði 30 stig, tók ellefu fráköst og gaf átta stoðsendingar. Þetta var þriðji sigur Houston í röð sem er í þriðja sæti vesturdeildarinnar með 39 sigra. Golden State er efst með 44 sigra og San Antonio er með 40.Staðan í deildinni. Úrslit næturinnar: Charlotte - Houston 95-107 Orlando - Philadelphia 111-112 Oklahoma City - Cleveland 118-109 Dallas - Utah 112-105 Portland - Boston 111-120
NBA Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Sögulegur dagur er Thelma sópaði til sín gullverðlaunum Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira