Tók á níunda ár að klára mál hjá Viðlagatryggingu eftir skjálfta Sveinn Arnarsson skrifar 14. febrúar 2017 07:00 Segja má að ófriður hafi ríkt um Friðarstaði allt frá árinui 2008. mynd/aðsend
Úrskurðarnefnd um Viðlagatryggingar gagnrýnir Viðlagatryggingasjóð harðlega í úrskurði sínum um málefni Friðastaða sem kveðinn var upp í desember. Telur nefndin málið hafa tekið óeðlilega langan tíma. Framkvæmdastjóri Viðlagatrygginga segir það mat byggt á reginmisskilningi.Hulda Ragnheiður Árnadóttirvísir/vilhelmHjónin Diðrik og Ingileif Kristjánsdóttir hafa frá árinu 2008 barist fyrir því að fá íbúðarhús sitt bætt að fullu eftir Suðurlandsskjálftann í lok maí það ár. Diðrik hefur lagt á annan tug milljóna í lögfræðikostnað. Vilja þau að tryggingarfjárhæðin miðist við brunabótamat fasteignarinnar, um 22 milljónir króna. „Úrskurðarnefndin telur að endingu óhjákvæmilegt að gera athugasemdir við meðferð Viðlagatryggingar Íslands á málinu, allt frá því að það kom fyrst til kasta stofnunarinnar í júní 2008. Telur úrskurðarnefndin að það verklag sem og sá tími sem farið hefur í meðferð málsins sé vart viðunandi,“ segir í úrskurðinum. Telur nefndin verklag ekki í teljast til góðrar stjórnsýslu og bætur til kæranda komi mjög til álita en dómstólar þurfi að skera úr um það. „Þetta hefur tekið gríðarlega langan tíma og hefur töfin kostað mig yfir tíu milljónir króna sem Viðlagatryggingar vilja ekki greiða fyrir,“ segir Diðrik Sæmundsson. „Eins og þetta horfir við mér eftir allan þennan tíma þá hef ég þá tilfinningu að eignir fólks séu í raun ótryggðar fyrir svona tjónum ef maður þarf að fara í svona langt og erfitt mál gegn kerfinu til að fá það bætt. Eins er það ekki að fullu bætt að mínu mati,“ bætir Diðrik við. Hulda Ragnheiður Árnadóttir, framkvæmdastjóri Viðlagatrygginga Íslands, segir úrskurð nefndarinnar byggðan á misskiliningi. „Málið hefur verið jafnlengi hjá úrskurðarnefndinni sjálfri og hjá okkur. Við höfum sýnt fram á það að við höfum alla tíð verið að vinna að málinu. Málið hefur aldrei legið hjá okkur óhreyft,“ segir Hulda Ragnheiður. „Persónulega finnst mér þetta hinsvegar mjög langur tími og vill að málin taki styttri tíma. Hinsvegar eru mál stjórnsýslulega mjög flókin þegar uppi er ágreiningur um nánast öll efnisatriði málsins.“ „Miðað við núverandi kerfi þarf að kæra til stjórnar Viðlagatryggingar fyrst og fá niðurstöðu þar. Þá niðurstöðu er svo hægt að kæra til úrskurðarnefndarinnar. Til að hraða málum sem þessum þar sem mikill ágreiningur er uppi, væri eðlilegt að það væri einn óháður úrskurðaraðili sem fjallaði um málið,“ bætir Hulda Ragnheiður við.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Innlent Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Innlent Fleiri fréttir Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust var í hluta Seltjarnarness og Vesturbæjar Skipverjar og hafnarverkamenn boða verkfall Harma að íbúar hafi verið í hættu við Fannborg Hótun um útrýmingu, ný kosningaspá og óvenjulegt þrumuveður Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Sjá meira