Vímuefnaskýrsla óhreyfð í ráðuneytinu Jón Hákon Halldórsson skrifar 17. febrúar 2017 07:00 Aðstoðarmaður Óttars Proppe segir að heilbrigðisstefna flokksins byggi á hugmyndum um skaðaminnkandi aðgerðir í fíkniefnamálum. vísir/vilhelm
Skýrsla starfshóps um leiðir til að draga úr skaðlegum áhrifum vímuefnaneyslu hefur legið á ís frá því að Kristján Þór Júlíusson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, kynnti hana í ágúst. „Það er markmið okkar að ráðast í vinnu út frá þessari skýrslu enda er efni hennar í samræmi við heilbrigðisstefnu Bjartrar framtíðar,“ segir Unnsteinn Jóhannsson, aðstoðarmaður Óttars Proppé heilbrigðisráðherra. „Það hefur þó ekki mikið gerst eftir að skýrslan var kynnt á Alþingi í ágúst síðastliðnum, þar sem haustþingið fór í að afgreiða örfá forgangsverkefni sem þurfti að ljúka fyrir áramót og í haust var svo kosið,“ bætir hann við. Í heilbrigðisstefnu Bjartrar framtíðar kemur fram að flokkurinn telur að gera þurfi sérstakar ráðstafanir innan heilbrigðiskerfisins til þess að koma til móts við þarfir jaðarsettra hópa. „Sýnt þykir að skaðaminnkandi þjónusta sem kemur til móts við jaðarsetta einstaklinga hefur mikið forvarnargildi varðandi ýmsa sjúkdóma og bætir líðan og heilsu þeirra sem þjónustunnar njóta. Við viljum með þessu draga úr álagi á bráðadeildir,“ segir í stefnunni. Það var Borgar Þór Einarsson lögfræðingur sem fór fyrir starfshópi heilbrigðisráðherra. Í skýrslu hópsins eru meðal annars tillögur um afnám fangelsisrefsinga fyrir vörslu á neysluskömmtum fíkniefna, að smávægileg fíkniefnabrot fari ekki í sakaskrá, auk fleiri tillagna um skaðaminnkandi aðgerðir. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Innlent Hegðun Trumps vonbrigði Innlent Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Innlent Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Innlent Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Innlent Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Innlent Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Innlent Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Innlent Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Fleiri fréttir Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust var í hluta Seltjarnarness og Vesturbæjar Skipverjar og hafnarverkamenn boða verkfall Harma að íbúar hafi verið í hættu við Fannborg Hótun um útrýmingu, ný kosningaspá og óvenjulegt þrumuveður Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Sjá meira