Fengið nóg af óviðeigandi skilaboðum og ofsóknum karlmanna Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. febrúar 2017 10:43 Guðný Helgadóttir ákvað að opna umræðuna um kynferðislega áreitni í formi dónalegra skilaboða á samfélagsmiðlum. Skilaboðin voru send úr gerviaðgangi á Facebook. Vísir
Guðný Helgadóttir, 22 ára tveggja barna móðir á Selfossi og starfsmaður hjá KFC, fékk verulega dónaleg skilaboð í gær frá karlmanni sem hún þekkir ekki neitt en skilaboðin eru send með gerviaðgangi á Facebook. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem hún fær skilaboð frá ókunnugum karlmönnum af kynferðislegum toga. Að því er virðist fyrir að brosa til viðskiptavina og sinna starfi sínu af fagmennsku. Hún segist vilja opna umræðuna um þetta mál og stígur fram á Facebook. Greinilegt er að vandamálið er víða að finna ef marka má ummæli við færslu Guðnýjar. Önnur vinkona hennar hefur fengið dónaleg skilaboð frá sama aðila og sendi skilaboðin í gær. „Mikið eru falleg svona ólétt ég er til í að gera þig endalaust ólétta því ég er svo til að koma og ríða þér með smokk og án smokks þú ert líka svo brjóst góð með svo flott brjóst,“ segir í skilaboðunum. Þeim fylgdu myndir af getnaðarlimi mannsins og myndband af honum að fróa sér inni á klósetti. Óþekktur aðili sem notast við dulnefni á Facebook sendi Guðnýju mynd af getnaðarlimi sínum og myndband af sér að fróa sér. Varð stjörf og leið illa Guðný lýsir því að hún hafi vaknað í gærmorgun við koss frá yngri dóttur sinni og svo tekið upp símann. Þá hafi þessi skilaboð blasað við. „Ég verð stjörf og mér líður illa og verður hálf óglatt,“ segir Guðný. Hún hafi farið að hugsa hvað hún hafi gert til að verðskuldað þessi skilaboð. „Ég var að vinna í gær, var þetta einhver sem að ég afgreiddi, er ég of brosandi eða of innilega eða er þetta virkilega að misskiljast svona? Hvað gerði ég vitlaust? Hvað gerðist ég til að verðskulda það að vera neydd til að horfa á typpi frá ókunnugum manni þegar ég vakna um morguninn?“ Hún segist vita til þess að hún sé langt í frá eina stelpan sem fái svona skilaboð og sumar lendi mun oftar í því en hún. Hún skilji bara ekki hvað fari í gegnum huga svona manna. Hún kvíði meir og meir að þurfa að ala stelpurnar sínar upp í svona heimi. „Ég mun örugglega nota frasann sem mamma mín notaði þegar hún bannað mér að fara á allskyns staði,“ segir Guðný og vitnar í móður sína: „Ég treysti þér en ég treysti bara ekki öllum hinum.“ Skilaboðin sem Guðný fékk árið 2015 frá erlendum viðskiptavini sem elti hana heim. Hefði varla kippt sér upp við eina typpamynd Guðný segist í samtali við Vísi hafa fengið nóg við að fá þessi skilaboð í gærmorgun. Hún hefði líklega ekkert gert neitt ef aðeins hefði verið um að ræða eina typpamynd og greinilega öllu vön þegar kemur að slíku áreiti. „En þegar ég er farin að fá sendar myndir af mér óléttri og texta um það, þá er komið nóg,“ segir Guðný. Sá sem sendir skilaboðin notast við dulnefni en um gerviaðgang á Facebook er að ræða. Hún segist þekkja fleiri dæmi um konur sem hafi fengið skilaboð frá sama aðila. Konur sem kenni í skólum á Selfossi séu þeirra á meðal. Þær hafi tilkynnt manninn til lögreglu og hún muni gera það sama. Hins vegar eru málin erfið rannsóknar fyrir lögreglu enda í mörgum tilfellum um að ræða gerviaðganga á Facebook sem er auðvelt að stofna en erfitt að rekja.Elt heim til sín Guðný segir alls ekkert einsdæmi að hún lendi í því að bros og spjall í starfi hennar við afgreiðslu hjá KFC sé misskilið. Hún hafi einu sinni varið góðum tíma í að aðstoða eldri mann, talað hátt og skýrt og brosað til hans á meðan hann gekk frá pöntun. Svo hitti hún manninn seinna á skemmtistað og þá vatt hann sér upp að henni og spurði hvort hún væri í leit að maka. Guðný er 22 ára.Sömuleiðis lenti Guðný einu sinni í því að erlendur ferðamaður heillaðist svo af henni að hann elti hana heim úr vinnunni og fylgdist með henni eiga samskipti við mann sinn og dóttur. Skilaboðin má sjá hér til hliðar.„Ég talaði við hann í tvær mínútur og það endaði á því að hann elti mig heim. Það eina sem róaði mig við það væri að hann var farinn úr landinu. Annars hefði ég fríkað út.“Færslu Guðnýjar má sjá hér að neðan.
Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira