Matur og vistun dýrust í grunnskólum Garðabæjar Benedikt Bóas skrifar 7. febrúar 2017 07:00 Í samanburðinum er miðað við þriggja tíma dagleg vistuna eftir skóla ásamt síðdegishressingu og hádegismat í 21 dag á mánuði. mynd/steinn vignir
Samkvæmt nýrri samantekt verðlagseftirlits ASÍ er hæst verð fyrir hádegisverð og síðdegisvistun grunnskólabarna í Garðabæ, eða 36.484 krónur á mánuði en lægst í Sveitarfélaginu Skagafirði þar sem þjónustan kostar 24.234 krónur. Allt að 51 prósents munur er á kostnaði foreldra vegna þjónustunnar meðal stærstu sveitarfélaga landsins samkvæmt samantektinni. Heildarkostnaður foreldra vegna þessarar þjónustu hefur hækkað í öllum fimmtán sveitarfélögunum sem skoðuð voru. Mesta hækkunin milli ára er í Reykjavík þar sem þjónustan hækkaði um ellefu prósent. Munar þar mest um þrjátíu prósenta hækkun á hádegisverði. Ef eingöngu er skoðuð gjaldskrá fyrir hádegisverð sem í boði er fyrir grunnskólabörn á öllum aldri má sjá að allt að 41 prósents verðmunur er á milli sveitarfélaga. Hæsta verðið er á Ísafirði þar sem máltíðin kostar 492 krónur. Akureyri og Vestmannaeyjar eru einu sveitarfélögin þar sem hádegisverður hækkaði ekki milli ára. Sigríður Hulda Jónsdóttir, formaður skólanefndar Grunnskóla Garðabæjar, segir að bærinn greiði grunnskólamat niður árlega um 60-70 milljónir. Þá sé forgangsmál í bæjarfélaginu að efla innra starf skólanna og í því skyni var stofnaður Þróunarsjóður grunnskóla árið 2014 sem útdeilir 30 milljónum á ári. Kennarar og aðrir starfsmenn skólanna geta sótt um. Auk þess hefur bærinn í upphafi árs ákveðið að leggja 50 milljónir aukalega til grunnskólanna vegna ýmissa verkefna. „Garðabær hækkaði skólamat mjög lítið milli ára síðast eða um tvö prósent á meðan ýmis önnur sveitarfélög hækkuðu mun meira. Munur á krónutölu er ekki mikill t.d. milli Garðabæjar og Hafnarfjarðar og sama á við um Kópavog. Garðabær leggur áherslu á hátt þjónustustig og eru börn tekin ung inn í leikskóla, leikskólinn lokar ekki á sumrin þannig að foreldrar geta valið sér tíma til að taka sumarfrí og auk þess er frjálst val um grunnskóla fyrir börn á milli grunnskóla með ólíkar áherslur,“ segir Sigríður.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Innlent Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Innlent Fleiri fréttir Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust á Seltjarnarnesi og hluta Vesturbæjar Skipverjar og hafnarverkamenn boða verkfall Harma að íbúar hafi verið í hættu við Fannborg Hótun um útrýmingu, ný kosningaspá og óvenjulegt þrumuveður Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Sjá meira