Blár strengur gegn ofbeldi á drengjum Garðar Örn Úlfarsson skrifar 31. janúar 2017 07:00 Baldur Ragnarsson, gítarleikari í Skálmöld og fleiri hljómsveitum, hefur stillt gítarinn sinn með bláum streng. Mynd/Baldur Ragnarsson „
Rannsóknir sýna að allt að einn af hverjum sex drengjum verður fyrir kynferðisofbeldi,“ segir í bréfi sem sent hefur verið ýmsum opinberum aðilum þar sem óskað er eftir styrkjum við átaksverkefni til að vekja athygli á kynferðisofbeldi gagnvart drengjum. Átaksverkefnið er á vegum nokkurra nemenda og kennara á heilbrigðisvísindasviði við Háskólann á Akureyri. Halda á ráðstefnu og vinnusmiðju á Akureyri með upphafsmönnum verkefnisins sem eru frá Ástralíu og Evrópu. Jafnframt á að efla starfsemi rannsóknarmiðstöðvar gegn ofbeldi sem nemendur og kennarar í HA komu á fót 2011. Fjölmargir tónlistarmenn hafa þegar stillt gítara sína með bláum streng. Þungarokkssveitin Skálmöld með sínum þremur gítarleikurum eru allir með bláan streng eins og Bubbi Morthens, Magni og Hreimur Heimisson. „Markmið rannsóknarmiðstöðvarinnar er að útrýma öllu ofbeldi, einkum gegn börnum og ofbeldi í nánum samböndum, meðal annars með samvinnu við stofnanir og félög hérlendis og erlendis,“ segir í bréfi aðstandenda verkefnisins. Einn þáttur þess er átaksverkefnið 1 Blárstrengur.Einn af hverjum sex drengjum verða fyrir kynferðisofbeldi segja aðstandendur 1 Blástrengs.NORDICPHOTOS/GETTY„Verkefninu „1 Blárstrengur“ er ætlað að vekja athygli á kynferðisofbeldi gagnvart drengjum, það er byggt á erlendri fyrirmynd sem hefur gefið góða raun þar sem því hefur verið hrundið í framkvæmd,“ segir í erindinu þar sem er, eins og fyrr segir, vitnað til rannsókna sem sýna að allt að einn af hverjum sex drengjum verður fyrir kynferðisofbeldi. „Vísar nafnið á verkefninu til sex strengja gítarsins en til að vekja athygli á átakinu er einum streng skipt út fyrir bláan streng.“ Þá kemur fram að kynferðisofbeldi hafi alvarlegar afleiðingar á líf milljóna um allan heim. Samfélagið geti ekki lokað augum og eyrum gagnvart þessum vanda. Karlmenn sem segi frá reynslu sinni upplifi bæði jákvæð og neikvæð viðbrögð. „Allt of margir upplifa fordóma frá samfélaginu og eru því hræddir við að segja frá. Karllæg gildi, karlmennskuímyndin og staðalímyndir hafa áhrif þar á og þrátt fyrir að samfélagið viðurkenni að vandinn sé til staðar virðast karlmenn almennt ekki leita sér hjálpar vegna reynslu sinnar, því er mikilvægt að opna umræðuna.“ Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Fleiri fréttir Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Sjá meira