
Einar: Vona að liðið sýni mikinn karakter
„Ég man vel eftir fyrsta mótinu sem var hérna í Frakklandi líka. Það var B-keppni en það gekk ekki nógu vel við lentum í 11. eða 12. sæti. Öll mót hafa sína sérstöðu,“ segir Einar en hvernig leggst þetta mót í hann?
„Þetta leggst alveg þokkalega í mig. Við vissum það fyrir mót að þetta yrði svolítið brött brekka. Við erum að endurnýja liðið. Nýir og ferskir menn eru að koma inn núna og það er alltaf dálítið erfitt. En þeir sýndu nokkuð góða frammistöðu í þessum leikjum á æfingamótinu í Danmörku. Ég er bara nokkuð bjartsýnn. Ég vona að liðið sýni mikinn karakter og berjist fyrir þessu lífi sínu hérna í þessu móti. Það er það fyrsta sem ég vil fá að sjá.“
Nú hefur umfjöllun um landsliðið oft verið meiri og menn oftar en ekki að fara á límingunum á þessum tíma en umræðan virðist vera í rólegri kantinum núna.
„Það má kannski segja það. Þetta er svolítið venjulegt því við erum á stórmóti á hverju einasta ári. Kannski eru ekki jafn miklar væntingar út af nýrri kynslóð sem er að koma inn í landsliðið. Þess vegna er það ekkert skrýtið. Menn þurfa alltaf að vinna sig inn aftur og við erum núna á þeirri leið.“
Heldurðu að þetta eigi eftir að vera erfið keppni fyrir strákana okkar og að við eigum eftir að lenda í basli?
„Ég er viss um það að þetta verður erfitt. En ef þú sérð leikmennina standa vel saman og berjast í hverjum einasta leik þá getur þú í raun ekki farið fram á meira. Ef getan er ekki næg þá fá menn þroska hérna og verða betri í framtíðinni.“
Ekki missa af neinu sem gerist á HM í Frakklandi. Vísir er með öflugt fréttateymi á mótinu sem færir ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).
Tengdar fréttir

Skólakrakkar í meirihluta áhorfenda
Það er oft erfitt að fá áhorfendur á völlinn á HM og sérstaklega í þeim leikjum sem fara fram um miðjan dag.

HM-pistill: Hvaða lag mun drengjakór Geirs syngja?
Það er ótrúlega áhugavert heimsmeistaramót fram undan hjá strákunum okkar. Það er svo mikið af ungum mönnum í Metz núna að þetta eru eiginlega bara drengir. Því er vel við hæfi að tala um drengjakór Geirs eins og Gaupi byrjaði á svo skemmtilega.

HM í dag: Arnari og Henry hent út af lestarstöðinni í Metz
Það er leikdagur á HM í handbolta og þá fer líka í loftið fyrsti þáttur af HM í dag á Vísi.

Ólafur: Mæti með kassann úti í þetta verkefni
"Við ætlum að ná í úrslit of ná sem bestu út úr þessu móti. Það er spennandi leikur í kvöld við Spánverja og þar ætlum við að ná í tvö stig,“ segir Ólafur Guðmundsson sem verður í stóru hlutverki í kvöld í fjarveru Arons Pálmarssonar.

Gef ungu drengjunum tækifæri
Geir Sveinsson ætlar að nýta þetta tímamótamót hjá handboltalandsliðinu til þess að byggja upp til framtíðar. Kynslóðaskiptin verða nánast kláruð á HM í Frakklandi eftir ótrúleg ár hjá gullaldarlandsliði Íslands.

Ég gef frá mér orku á vellinum
Það bíða margir spenntir eftir því að sjá hinn magnaða Janus Daða Smárason á HM en hann sýndi í æfingaleikjum fyrir mótið að hann hefur ansi margt fram að færa. Leikmaðurinn er yfirvegaður og ætlar að nýta sín tækifæri vel.

Guðjón: Ekki slæmt að gera mistök ef menn læra af þeim
Landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson tekur nú þátt í sínu 20. stórmóti í handbolta. Guðjón Valur lék með Barcelona og hann segir þetta um mótherja kvöldsins.

Gunnar Steinn: Þurfum að koma þeim á óvart í vörninni
Gunnar Steinn Jónsson verður í stærra hlutverki nú þegar Aron Pálmarsson spilar ekki hér í Frakklandi. Hann segist til í slaginn.

Arnór Þór: Erum að mæta heimsklassaleikmönnum
Hornamaðurinn knái Arnór Þór Gunnarsson verður á sínum stað í horninu í kvöld en hvernig ætlar svona lágvaxinn maður að stríða stóru Spánverjunum?