Æðstu embættismenn Trump sjá Rússland sem ógn Samúel Karl Ólason skrifar 12. janúar 2017 17:00 James Mattis og Mike Pompeo. Vísir/AFP
Fyrrverandi hershöfðinginn James Mattis og þingmaðurinn Mike Pompeo segjast báðir telja að Bandaríkjunum og bandamönnum landsins stafi ógn af Rússlandi. Mattis hefur verið tilnefndur sem varnarmálaráðherra af Donald Trump, verðandi forseta Bandaríkjanna, og Pompeo hefur verið tilnefndur til að leiða leyniþjónustur Bandaríkjanna. Yfirlýsingar Mattis og Pompeo hafa vakið athygli þar sem Trump hefur ítrekað talað um að bæta samskipti Bandaríkjanna og Rússlands. Mattis sagði samkvæmt BBC að Vladimir Putin, forseti Rússlands, væri að reyna að sundra ríkjum Atlantshafsbandalagsins. Nauðsynlegt væri fyrir NATO að vernda sig með öllum leiðum. Nefndi hann sérstaklega aðgerðir Rússa í Úkraínu sem og aðgerðir Kína í Suður-Kínahafi. Matt Pompeo þurfti að svara spurningum þingmanna um yfirlýsingar Donald Trump varðandi leyniþjónustur Bandaríkjanna, en hann neitaði lengi að sætta sig við niðurstöður þeirra að Rússar hefðu haft áhrif á forsetakosningarnar í Bandaríkjunum. Gjá hefur myndast á milli Trump og leyniþjónusta Bandaríkjanna. Pompeo sagði að Trump bæri fullt traust til leyniþjónustanna. Þá gagnrýndi hann Rússland fyrir aðgerðir sínar í Úkraínu, að ógna Evrópu og fyrir að gera „nánast ekkert“ til að eyða Íslamska ríkinu.
Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum Suður-Kínahaf Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira