Fólk á sjötugsaldri mætti best á kjörstað Jón Hákon Halldórsson skrifar 22. desember 2016 07:00 Af kjörstað. vísir/valli
Verulegur munur var á kosningaþátttöku í alþingiskosningunum 29. október eftir aldurshópum. Þátttakan var minnst meðal kjósenda á aldrinum 20-24 ára, eða 65,7 prósent. Mest var hún í aldurshópnum 65-69 ára eða 90,2 prósent. Svipað var uppi á teningnum í síðustu forsetakosningum og í sveitarstjórnarkosningum 2014. Kosningaþátttakan í heild, 79,2 prósent, hefur aldrei verið minni. „Yngra fólk hefur ekki komið því upp í vana að mæta á kjörstað en kemur síðan inn um 25 til 27 ára aldurinn,“ segir Eva H. Önnudóttir, nýdoktor í stjórnmálafræði, sem hefur tekið í þátt í Íslensku kosningarannsókninni á vegum Félagsvísindastofnunar undanfarin ár. Það sé hins vegar nýtt sem sjáist núna í Íslensku kosningarannsókninni að nú sé að koma upp kynslóð fólks, sem kýs ekki þó hún hafi náð 26 til 27 ára aldri. „En þetta er bara smá trend sem maður sér og það virðist sjást betur í öðrum ríkjum þar sem kosningaþátttaka er lakari,“ segir hún.Þátttaka í alþingiskosningum 2016Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins, Stöðvar 2 og Vísis sem birt var að kvöldi 27. október bendir til þess að ólík kosningaþátttaka eftir aldurshópum kunni að hafa haft veruleg áhrif á niðurstöður kosninga. Þannig sögðust einungis 10,2 prósent kjósenda í aldurshópnum 50 ára og eldri ætla að kjósa Pírata en 23,9 prósent þeirra sem voru í aldurshópnum 18-49 ára. Píratar áttu því mikið undir því að fólk undir fimmtugu skilaði sér á kjörstað.Eva Heiða Önnudóttir, nýdoktor í stjórnmálafræðiEva segir að áherslur stjórnmálaflokkanna séu mikilvægar til þess að ýta undir kosningaþátttöku. „Kosningabaráttan skiptir máli og það hefur stundum verið rætt um það hvort það eigi að beina sjónum sérstaklega að augum ungs fólks. Maður hefur stundum séð það gert og það er mikilvægt,“ segir Eva. Á hinn bóginn kunni stjórnmálaflokkar að vilja beina athyglinni frekar að þeim hópi sem er líklegri til að mæta á kjörstað en aðrir hópar. Eva segir að unga fólkið geti líka gripið til ráðstafana til þess að ýta undir áhuga ungmenna á því að kjósa. „Þessar skuggakosningar sem voru haldnar núna í framhaldsskólunum voru frábært framtak. Allt svona skiptir rosalega miklu máli til þess að ýta undir þátttöku,“ segir hún. Þar vísar hún til kosninga á vegum Landssambands æskulýðsfélaga og Sambands íslenskra framhaldsskólanema sem voru settar upp eins og almennar kosningar og fram fóru í framhaldsskólunum 13. október. Megintilgangurinn var að þjálfa þau sem ekki hafa náð kosningaaldri í að kjósa og undirbúa þau sem hafa aldur til fyrir að kjósa í fyrsta sinn. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Erlent „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Innlent Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði Erlent Mæla með að fólk leggi fyrr af stað Veður Gefur skít í helvítishótanir Trumps Innlent Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Innlent „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Erlent Mafíuforingi á flótta handtekinn í lúxusvillu á Amalfi-strönd Erlent „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Innlent Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar Innlent Fleiri fréttir Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Hryðjuverkamálið á dagskrá Landsréttar í maí Umferðin gengur hægt en stóráfallalaust fyrir sig Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Oddvita sparkað af listanum og segir af sér formennsku Sendiherrum og skrifstofustjórum stokkað Ísland, Grænland og Færeyjar saman hefðu sterka samningsstöðu Sjá meira