CIA: Rússar skárust í leikinn til að koma Trump í forsetastól Þorbjörn Þórðarson skrifar 10. desember 2016 10:33
Bandaríska leyniþjónustan, CIA, hefur komist að þeirri niðurstöðu í leynilegu minnisblaði að rússnesk stjórnvöld hafi skipst sér af forsetakosningunum í Bandaríkjunum til að hjálpa Donald Trump að sigra í kosningunum en ekki aðeins til að draga úr tiltrú á bandaríska kosningakerfinu.Bandaríska dagblaðið Washington Post greinir frá þessu á vefsíðu sinni seint í gærkvöldi og prentaðri útgáfu blaðsins í dag. Bandaríska leyniþjónustan hefur borið kennsl á einstaklinga með tengsl við ríkisstjórn Rússlands sem létu uppljóstrarasíðunni Wikileaks í té þúsundir tölvupósta frá landstjórn Demókrataflokksins, kosningastjóra Hillary Clinton og öðrum sem rússneskir tölvuhakkarar komist yfir að því er fram kemur í umfjöllun Washington Post. Heimildarmenn blaðsins fullyrða að þessir einstaklingar hafi unnið að stærri aðgerðaáætlun sem hafði það að markmiði að hjálpa Trump og skaða Hillary Clinton í kosningabaráttunni. Minnisblaðið sem var unnið fyrir öldungadeild Bandaríkjaþings hefur ekki verið gert opinbert. Umbreytingateymi Donald Trump sem á að tryggja farsæla innreið hans í Hvíta húsið hafnaði ásökunum bandarísku leyniþjónustunnar í stuttri yfirlýsingu í gærkvöldi.
Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó Sjá meira