Dagur tilkynnir stóra HM-hópinn

Sterka leikmenn vantar í þýska liðið en skytturnar Steffen Weinhold, Fabian Wiede og Christian Dissinger verða ekki með á HM vegna meiðsla.
Í ljósi meiðsla hinna örvhentu Weinholds og Wiedes er Holger Glandorf, leikmaður Flensburg, í startholunum en hann hefur ekki leikið með þýska landsliðinu frá 2014.
Dagur þarf að fækka um 12 leikmenn í hópnum áður en að HM kemur. HM-hópurinn telur 16 leikmenn en heimilt er að gera tvær breytingar á honum á meðan á mótinu stendur.
HM í Frakklandi er síðasta stórmót Dags með þýska landsliðið en hann tekur sem kunnugt er við japanska landsliðinu í sumar.
Þjóðverjar mæta Rúmenum og Austurríkismönnum í vináttulandsleikjum fyrir HM.
Þýskaland er í riðli með Ungverjalandi, Síle, Sádí-Arabíu, Hvíta-Rússlandi og Króatíu á HM sem hefst 11. janúar á næsta ári.
Þýski hópurinn er þannig skipaður:
Markverðir: Silvio Heinevetter (Füchse Berlin), Carsten Lichtlein (VfL Gummersbach), Dario Quenstedt (SC Magdeburg), Andreas Wolff (THW Kiel)
Vinstra horn: Rune Dahmke (THW Kiel), Uwe Gensheimer (Paris St. Germain HB), Matthias Musche (SC Magdeburg)
Vinstri skyttur: Paul Drux (Füchse Berlin), Steffen Fäth (Füchse Berlin), Julius Kühn (VfL Gummersbach), Finn Lemke (SC Magdeburg), Daniel Fontaine (Frisch Auf Göppingen)
Miðjumenn: Simon Ernst (VfL Gummersbach), Niclas Pieczkowski (SC DHfK Leipzig), Fabian Böhm (TSV Hannover-Burgdorf), Philipp Weber (HSG Wetzlar)
Hægri skyttur: Holger Glandorf (SG Flensburg-Handewitt), Kai Häfner (TSV Hannover-Burgdorf), Jens Schöngarth (Frisch Auf Göppingen), Nicolai Theilinger (HC Erlangen)
Hægra horn: Patrick Groetzki (Rhein-Neckar Löwen), Tobias Reichmann (KS Vive Tauron Kielce), Johannes Sellin (MT Melsungen)
Línumenn: Jannik Kohlbacher (HSG Wetzlar), Hendrik Pekeler (Rhein-Neckar Löwen), Evgeni Pevnov (VfL Gummersbach), Erik Schmidt (TSV Hannover-Burgdorf), Patrick Wiencek (THW Kiel)
Tengdar fréttir

Dagur semur við Japan til ársins 2024
"Þetta er búið að eiga sér langan aðdraganda. Það eru svona tíu ár síðan ég byrjaði að vera í stöðugu sambandi við japanska sambandið,“ segir Dagur Sigurðsson handboltaþjálfari við Vísi en í kvöld verður tilkynnt að hann hafi samið við japanska handknattleikssambandið.

Sumum finnst þetta eflaust vera skrítin ákvörðun
Dagur Sigurðsson er á leið í annað Japansævintýri á nýju ári, þrettán árum eftir að hann yfirgaf landið á sínum tíma. Hann yfirgefur eitt besta landslið heims og afþakkaði tilboð frá ríkasta félagi heims til þess að stýra uppbyggingu handboltans í Japan næstu árin. Samningur Dags nær fram yfir næstu tvenna Ólympíuleika.

Dagur hættir með þýska landsliðið og tekur við Japan
Dagur Sigurðsson mun stýra þýska handboltalandsliðinu í síðasta sinn á HM í Frakklandi í byrjun næsta árs. Dagur hefur ákveðið að taka við japanska landsliðinu í sumar.

Dagur: Kveðjustundin verður erfið
Segir að peningar hafi engin áhrif haft á ákvörðun hans. Hann hefði getað þénað meira annars staðar en í Japan.

Bob Hanning: Dagur breytti hugsunarhættinum í þýskum handbolta
Bob Hanning, varaforseti þýska handboltasambandsins, talar vel um Dag Sigurðsson í fréttinni um að íslenski þjálfarinn hafi ákveðið að hætta sem þjálfari þýska handboltalandsliðið eftir HM í Frakklandi.

Kretzschmar: Gerðum við nóg til að halda Degi?
Stefan Kretzschmar sér mjög á eftir Degi Sigurðssyni sem hefur ákveðið að hætta með þýska landsliðið.