Í þessari yfirferð verður farið yfir vinsælustu og stærstu fréttirnar hjá dægurmáladeildinni sem margir ættu að hafa gaman af því að rifja upp.
Efst í fréttinni má hlusta á nýjasta Poppkastþáttinn þar sem einmitt er fjallað um fréttir ársins.
Gekk óvart inn í beina
Byrjum á toppnum. Vinsælasta fréttin í Lífinu var sennilega sú skemmtilegasta, en þar mátti sjá nokkuð skondið atvik sem átti sér stað í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins 2. ágúst þegar María Sigrún Hilmarsdóttir, fréttaþula, las inngang að annarri frétt fréttatíma kvöldsins.
Sjá einnig:Óborganlegt atvik í kvöldfréttum RÚV - myndband
Lögfræðingurinn Ragnar Aðalsteinsson var staddur í myndveri vegna fyrstu fréttar kvöldsins en hún fjallaði um bréf sem lögfræðingnum þótti sanna sakleysi Sævars Cieselski sem dæmdur var fyrir morðið á Geirfinni Einarssyni fyrir hartnær fjörutíu árum. Ragnar einfaldlega gekk inn í mynd og svipurinn á honum sagði einfaldlega alla söguna.

Sjá einnig:Ágústu Evu ofbauð framkoma Reykjavíkurdætra
Að þessu sinni var atriðið í boði rappsveitarinnar Reykjavíkurdætra. Athygli vakti að í miðju lagi þeirra stóð Ágústa Eva á fætur og yfirgaf sjónvarpssalinn.
Reykjavíkurdætur eru þekktar fyrir kraftmikla sviðsframkomu og á því var engin breyting á þetta kvöld. Þær voru klæddar í sjúkrahúsklæðnað og ein þeirra var vopnuð „strap on“ gervilim. Þannig dönsuðu þær um settið og innan um aðra gesti þáttarins, þá Sóla Hólm, Eivöru Pálsdóttur og Jóhannes Hauk Jóhannessonar, meðan þær fluttu lagið Ógeðsleg.
Í kjölfarið var fjallað gríðarlega mikið um málið í öllum miðlum landsins og höfðu allir skoðun á ákvörðun Ágústu Evu.

Sjá einnig: Frönsku stuðningsmennirnir stóðu heiðursvörð fyrir þá íslensku
Stuðningsmenn franska landsliðsins kunnu vel að meta íslensku stuðningsmennina ef marka má myndband sem birt var á Twitter 3. júlí og sýndi Frakkana standa heiðursvörð við einn af útgöngum Stade de France fyrir Íslendingum.
Þeir frönsku klöppuðu þeim íslensku lof í lófa en frammistaða íslensku stuðningsmannanna á mótinu vakti athygli víða um heim, líkt og frammistaða íslenska landsliðsins sem datt úr keppni þegar það laut í lægra haldi fyrir Frökkum, 5-2, í átta liða úrslitum
Myndband af þessu fallega augnabliki á Stade de France má sjá hér að neðan.
France fans clapped Iceland fans out of stadium after tonight's match. Football isn't all bad. #euro2016 #FRAISL pic.twitter.com/ZdGOJseW7F
— Matt Lamprell (@MattLamprell) July 3, 2016

Meðal annars var bein útsending frá því þegar Justin Bieber lenti á Reykjavíkurflugvelli og var 90 mínútna bein útsending Lífsins fyrir fyrri tónleikana í Kórnum. Justin Bieber er einn frægasti maður jarðarinnar og það fór gjörsamlega allt á hliðina á Ísland þá daga sem hann var staddur á landinu.
Sjá einnig:Allar fréttir Lífsins um Justin Bieber, tónleikana og dvöl hans á landinu
Hér að neðan má síðan horfa á báðar beinu útsendingarnar sem Vísir stóð fyrir í tengslum við Justin Bieber og voru þær báðar í hópi stærstu frétta ársins í Lífinu.

Arna Ýr dró sig úr keppninni og uppskar mikið lof fyrir framgöngu sína gagnvart eigendum keppninnar. Skipuleggjendur keppninnar gagnrýndu Örnu Ýri og sögðu að hún væri einfaldlega of feit og þyrfti að grenna sig fyrir lokakvöldið.
Sjá einnig: Örnu Ýri skipað að grenna sig fyrir lokakvöld fegurðarsamkeppni í Las Vegas
Arna Ýr greindi frá því og sagðist ekki ætla að taka þátt nema eigendurnir myndu taka til hjá sér. Síðar steig hún fram og sagði að um misskilning hefði verið að ræða en dró það til baka og sagðist hafa verið neydd af eigendum keppninnar til að segja það.
Sjá einnig:Erlendir miðlar fjalla um mál Örnu Ýrar: „Ég elska þessa konu!“
Málið vakti gríðarlega athygli um heim allan og fjölluðu erlendir miðlar mikið um málið.
Parið sem sló í gegn og skildi

Sjá einnig:Piana hjólar í Söru Heimis: Stal peningum og giftist mér aðeins fyrir græna kortið
Sara svaraði í ítarlegu viðtali við Brennsluna á FM957. Þar kallaði hún Piana óöruggan fokking lygara.
Sjá einnig: Sara Heimis svarar Rich Piana fullum hálsi: Óöruggur fokking lygari

Á vefsíðu TMZ kom fram ítarleg lýsing á atburðarásinni en þar segir að mennirnir tveir hafi handjárnað Kim, límt fyrir munn hennar og komið henni fyrir í baðkari.
Sjá einnig:Kim bundin, kefluð og hent í baðkar: Bað ræningjana að þyrma lífi sínu
Hún hafi beðið ræningjana að þyrma lífi sínu. Einnig á hún að hafa sagt að hún ætti tvö lítil börn og reynt með því að höfða til samvisku mannanna.
Ránið vakti mikla athygli hjá öllum miðlum heims og kom Kim Kardashian ekkert opinberlega fram næstu vikur. Í raun er hún enn að jafna sig eftir atvikið.
Mennirnir tveir sem fóru inn í svítuna voru báðir vopnaðir byssum. Þeir fóru í burtu með skartgripi að verðmæti 6,7 milljónum dollara eða því sem samsvarar 760 milljónum íslenskra króna. Mennirnir eru ófundnir en þeir flúðu á reiðhjólum.
Sjá einnig:Kim Kardashian rænd: Hvað gerðist í París?
Kanye West, eiginmaður hennar, hefur átt erfitt uppdráttar að undanförnu og var hann meðal annars lagður inn á spítala á dögunum vegna ofþreyttu. Að undanförnu hafa erlendir miðlar fjallað um það að Kim sé búin að sækja um skilnað frá Kanye.
Í apríl á þessu ári kom fjölskyldan í heimsókn til Íslands og fjallaði Lífið ítarlega um dvöl þeirra á landinu.
Kim Kardashian, Kanye West, Kourtney Kardashian og Jonathan Cheban skemmtu sér virkilega vel á Íslandi og ferðuðust þau mikið um Suðurlandið.
Kim var miður sín að boðið væri upp á hrossakjöt á veitingarstað á Íslandi, Kourtney brá sér í hlutverk barþjóns á 101 Hótel og fór gengið í hláturskast yfir prumpulykt íslenska bílstjórans.
Kourtney og Cheban skelltu sér í göngutúr um miðborg Reykjavíkur og voru elt á röndum.

Ástæðan fyrir skilnaðnum mun hafa verið mismunandi sjónarmið parsins á barnauppeldi. Þau giftu sig í ágúst 2014 og er með sanni hægt að segja að þetta sé eitt allra frægasta par heims í dag.
Brad Pitt er 52 ára en Angelina Jolie er 41 árs. Jolie-Pitt börnin eru sex talsins og heita; Maddox Chivan (15 ára), Pax Thien (12 ára), Zahara Marley (11 ára), Shiloh Nouvel (10 ára) og tvíburarnir Knox Leon (8 ára) og Vivienne Marcheline (8 ára).
Heimurinn fékk sjokk og frétti einn besti vinur Brad Pitt, George Clooney, af skilnaðnum í miðju sjónvarpsviðtali.
WATCH: George Clooney is stunned when CNN tells him Angelina Jolie & Brad Pitt are divorcing https://t.co/Hos12fgCZp pic.twitter.com/h94ewdrMuo
— CNN Entertainment (@CNNent) September 20, 2016
Fréttirnar í Lífinu á þessu ári voru einstaklega skemmtilegar, vandaðar og sumar hverjar mjög svo heimskulegar. Enda er þetta afþreyingar og skemmtihluti Vísis. Lífið þakkar fyrir árið og vonandi verður árið 2017 enn betra.
Efst í fréttinni má hlusta á nýjasta Poppkastþáttinn þar sem fjallað er um fréttir ársins.
Poppkastið er hlaðvarpsþáttur á Vísi. Umsjónarmenn þáttarins eru Stefán Árni Pálsson (@stebboinn) og Hulda Hólmkelsdóttir (@huldaholm). Í þættinum er farið yfir víðan völl í dægurmálafréttum, farið yfir fréttir vikunnar auk þess sem Stefán og Hulda fá til sín góða gesti til að ræða dægurmálin. Hér að ofan má hlusta á sjötta þáttinn af Poppkastinu sem kemur út alla föstudaga á Vísi. Poppkastið er aðgengilegt í hinum ýmsu hlaðvarpsþjónustum, t.a.m. iTunes. Hér má fylgjast með Poppkastinu á Facebook.