RÚV heyrist ekki á Héraði Benedikt Bóas skrifar 19. desember 2016 08:00 Ríkisútvarpið heyrist illa á Austurlandi og hefur bæjarráð Fljótsdalshéraðs farið fram á skýringar. Vísir/GVA
Útvarpssendingar RÚV á Fljótsdalshéraði eru svo slæmar að íbúar þar hafa kvartað og bent bæjarráði á að stöðin sé í sífellu að detta út. Málið var tekið fyrir á bæjarráðsfundi í vikunni þar sem fram komu fyrirspurnir, kvartanir og ábendingar frá íbúum um endurteknar truflanir á FM-útsendingum RÚV í sveitarfélaginu. Gunnar Jónsson, formaður bæjarráðs, segir að útsending RÚV detti út í tíma og ótíma. „Ég vil ekki taka svo djúpt í árinni að segja að RÚV náist ekki hérna en það hafa verið miklar truflanir á tímabili. Við höfum óskað eftir skýringum frá RÚV sem við viljum gjarnan fá svör við því þetta er auðvitað ekki ásættanlegt.“ Bæjarráð samþykkti á fundi sínum að óska eftir upplýsingum frá RÚV um hvernig staðið verður að úrbótum á sambandinu. „Auðvitað viljum við að þetta sé í lagi. Mér persónulega er alveg sama um skýringuna en ég vil að þetta sé í lagi. Þótt truflanir séu á útsendingu Bylgjunnar þá eru aðrar kröfur gerðar til RÚV. Það er útvarp allra landsmanna og við hljótum, sem íbúar þessa lands, að gera kröfur um að það heyrist.“ Hann bendir á að hann hafi ekki heyrt af sama vandamáli með Bylgjuna. „Ég hef ekki heyrt það en Bylgjan er öðruvísi uppbyggð og við eigum ekki sömu heimtingu þar á bæ.“Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Erlent „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Innlent Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði Erlent Mæla með að fólk leggi fyrr af stað Veður Gefur skít í helvítishótanir Trumps Innlent Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Innlent „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Erlent Mafíuforingi á flótta handtekinn í lúxusvillu á Amalfi-strönd Erlent „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Innlent Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar Innlent Fleiri fréttir Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Hryðjuverkamálið á dagskrá Landsréttar í maí Umferðin gengur hægt en stóráfallalaust fyrir sig Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Oddvita sparkað af listanum og segir af sér formennsku Sendiherrum og skrifstofustjórum stokkað Ísland, Grænland og Færeyjar saman hefðu sterka samningsstöðu Sjá meira