Obama og Trump funda í dag Samúel Karl Ólason skrifar 10. nóvember 2016 08:45 Donald Trump og Barack Obama. Vísir/Getty
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, mun í dag funda með Donald Trump, sem kjörinn var í embætti forseta í gær. Á fundinum munu þeir ræða komandi valdaskipti í janúar. Líklegt þykir að fundurinn verði vandræðalegur þar sem Trump hefur varið árum í að draga réttmæti Obama sem forseta í efa og Obama hefur gert mikið grín að Trump á síðustu mánuðum.Trump leiddi „birther“ hreyfinguna svokölluðu sem dró í efa að Obama væri í raun bandarískur ríkisborgari. Jafnvel eftir að Obama birti fæðingarvottorð sitt sagðist Trump hafa „áreiðanlegar heimildir“ fyrir því að vottorðið væri falsað.Obama segir þó mikilvægt að valdaskiptin gangi vel og segist ætla að fylgja fordæmi George W. Bush. Hann segir að þegar hann var kjörinn forseti deildu hann og Bush mikið og um margt. „En teymi Bush hefði ekki geta verið fagmannlegra eða vinsamlegra til að tryggja að valdaskiptin gegnu vel fyrir sig,“ sagði Obama. Hann hefur nú skipað sínu teymi að tryggja hið sama.Trump hefur heitið því að draga til baka margar af stefnum og tilskipunum Obama. Má þar nefna aðkomu Bandaríkjanna að Parísar samkomulaginu, heilbrigðiskerfisbreytingar Obama og kjarnorkusamkomulagið við Íran.Josh Earnest, talsmaður Obama, sagði að forsetinn myndi ræða við Trump um jákvæð áhrif þessara mála.
Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Erlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent „Svaraðu spurningunni“ Innlent Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Innlent Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Innlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Enn í lífshættulegu ástandi Innlent „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Innlent Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Innlent Fleiri fréttir Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður „Menningarleg hnignun“: Bandaríkjastjórn skýtur á Breta vegna Nowak Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Segir Kúbu næsta á eftir Íran Repúblikanar unnu kjördæmastríðið „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Hezbollah harðneitar samkomulagi Ísraels og Líbanons Höfuðpaur í Foxtrot hafi skipulagt sprengju- og skotárásir í Noregi Pelley látinn fjúka og óvissa uppi um framtíð 60 mínútna Maður sem tók tíu í gíslingu í Kaliforníu skotinn til bana Sjá meira