Annie Mist fékk sér umhverfisvænan töffara Finnur Thorlacius skrifar 14. nóvember 2016 09:50 Annie kampakát með nýja bílinn.
Það var vel við hæfi að CrossFit-meistarinn Annie Mist Þórisdóttir fékk draumabílinn afhentan á Vistvænum dögum HEKLU sem nú standa yfir. Um er að ræða tengiltvinnbílinn Volkswagen Golf GTE sem gengur bæði fyrir rafmagni og bensíni. Í tilkynningu frá Heklu segir að Annie Mist hafi keyrt Volkswagen frá því hún var sautján ára gömul. Hún fjárfesti í Volkswagen Polo áður en hún fékk bílpróf og þegar kom að því að endurnýja kom ekkert annað til greina en Volkswagen. „Polo-inn var algjör draumabíll og þegar ég ákvað að skipta langaði mig bara í Volkswagen. Ég vildi aðeins stærri bíl í þetta skiptið og fannst Golf alveg fullkominn.“ Annie fannst einnig vistvænn farkostur heillandi og þegar hún og kærastinn, Frederik Ægidius, byrjuðu að reynsluaka kolféllu þau fyrir Golf GTE sem gengur bæði fyrir rafmagni og bensíni. „Við prófuðum Golf GTE og það er svo ótrúlega þægilegt og gaman að keyra hann. Hann er hljóðlátur og tekur einstaklega vel við sér og svo fannst okkur Frederik það vera mjög mikill plús að hann sé umhverfisvænn.“ En hvert skyldi ferðinni vera heitið á nýja bílnum? „Við byrjum á að bruna á æfingu en svo förum við upp í sumarbústað um helgina. Fjölskyldan hans Frederik er að koma til okkar svo við munum fara Gullna hringinn á nýja bílnum í næstu viku. Ég hlakka mikið til að prófa að keyra hann úti á landi.“Jóhann Ingi, deildarstjóri Volkswagen, afhendir Annie Mist nýja bílinn.Nýi bíllinn gengur fyrir bæði rafmagni og bensíni og Annie þykir það mikill plús að hann sé vistvænn.
Mest lesið Segjast hafa skotið niður indverskar herþotur Erlent Moskítóflugur muni koma til Íslands Innlent Vilja að ríkisstarfsmenn starfi til 73 ára aldurs Innlent Auka njósnir og eftirlit á Grænlandi Erlent Alþingi hafi mistekist að tryggja þjóðinni eðlilegan hlut Innlent Bein útsending: Páfakjör í Páfagarði Erlent Sex evrópskir utanríkisráðherrar skora á Ísrael Innlent Borin út úr Bríetartúni: „Það er búið að ræna mig öllu“ Innlent Misstu aðra herþotu í sjóinn Erlent Heimila hernum að hefna fyrir árásirnar í gær Erlent