Ferðast um í lúxus hjá Arctic Exclusive Finnur Thorlacius skrifar 15. nóvember 2016 09:19 Hér væsir ekki um neinn.
Fyrirtækið Arctic Exclusive á líklega flottast fólksflutningabíl landsins og í honum er ekkert til sparað til að gera vel við farþega. Þessum bíl er enda ætlað að þjóna þeim hluta ferðamanna hérlendis sem hafa hvað mest á milli handanna. Bíllinn er af Mercedes Benz Sprinter gerð, en honum hefur sannarlega verið breytt mikið þó það sjáist ekki utaná honum. Arctic Exclusive hannaði bílinn sjálft en lét þýskt breytingafyrirtæki sérsmíða bílinn að innan.Sérsmíðaður af Diewert í Þýskalandi Bílinn keypti Arctic Exclusive af Öskju og þá sem tóman sendibíl, hann var svo fluttur innan Þýskalands til lítils bæjar að nafni Minden, en þar er lítið fjölskyldufyrirtæki að nafni Diewert. Diewert sérhæfir sig í smíði á lúxusbílum og þá aðallega af gerðinni Mercedes Benz Sprinter og V-Class. Smíðin hjá Diewert tók 12 vikur og er allt sérsmíðað fyrir hvern bíl enda engir tveir eins. Þessi gerð af bílum er kölluð "Jet Van" í Bandaríkjunum og er þá verið að vitna til líkindanna milli þessara bíla og einkaþotna. Geta má þess að breytingin á bílnum kostaði mun meira en bíllinn sjálfur.Ótrúlegur lúxus og troðinn búnaði Dæmi um búnað í bílnum er tvö 32 tommu Samsung smart TV, auk Apple TV. Tvöföld WiFi-tenging er í bílnum, annað fyrir sjónvörp og hitt fyrir farþega til einkanota. Fjögur uppdraganleg fartölvuborð eru í bílnum, "sky light" ljós í toppi og RGB LED-ljós á ýmsum stöðum. Í bílnum eru 7 stórglæsileg leðursæti með leðri frá Mercedes (sama og í S class Benz), viðarpanelar með brúnni rót frá Benz, fjölmargir lokaðir skápar, rafknúnar gardínur og hægt er að loka á milli farþega- og bílstjórarýmis. Kampavínskælir er náttúrulega á sínum stað og fjöldi glasa í upplýstum skáp í hliðunum. Í stuttu máli var ekkert til sparað í þessum bíl og hann algjört augnakonfekt. Bílinn fékk Arctic Exclusive til landsins í vor og hann hefur verið notaður í sumar og haust við akstur á ferðamönnum sem vilja aðeins það besta þegar kemur að lúxus og þægindum og nóg er að gera.Ein 4 fartölvuborð eru í bílnum og frábær vinnuaðstaða.Bíllinn er af gerðinni Mercedes Benz Sprinter.
Mest lesið Segist vita hver vó Geirfinn Innlent Vita ekki hvað fór úrskeiðis Innlent Airbus-þota Icelandair flaug í fyrsta sinn í dag Innlent Ógildu lögin gætu bakað ríkinu skaðabótaskyldu Innlent Miðflokksmenn séu mestu vælukjóarnir Innlent Stofnandi World Wrestling Entertainment verður menntamálaráðherra Erlent Fern ný jarðgöng undirbúin meðan Fjarðarheiðin bíður Innlent Skallaði lögreglumann sem hugðist hafa af honum afskipti Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ungar danskar konur taldar hafa látist af metanóleitrun Erlent