Hólmfríður semur við KR Henry Birgir Gunnarsson skrifar 18. nóvember 2016 17:29 Hólmfríður Magnúsdóttir. vísir/valli
Kvennalið KR heldur áfram að safna liði fyrir næsta sumar og nú hefur landsliðskonan Hólmfríður Magnúsdóttir samið við sitt uppeldisfélag. Á heimasíðu KR er sagt að Hólmfríður muni skrifa undir tveggja ára samning við KR./ Hún er þriðji atvinnumaðurinn sem semur við KR í vikunni en í upphafi vikunnar sömdu þær Katrín Ómarsdóttir og Þórunn Helga Jónsdóttir við KR. Það er því ljóst að KR ætlar sér stóra hluti í kvennaboltanum á nýjan leik. Hólmfríður spilaði 129 leiki fyrir meistaraflokk KR frá 2000-2008 og skoraði í þeim 109 mörk. Hún varð Íslandsmeistari með félaginu 2002 og 2003. Hólmfríður fór fyrst á lán hjá Fortuna Hjörring í Danmörku, spilaði síðan eitt tímabil með Kristianstad í Svíþjóð og tvö tímabil með Philadelphia Independence í Bandaríkjunum. Síðustu fimm tímabil spilaði Hólmfríður með Avaldsnes í Noregi sem endaði í öðru sæti í efstu deild á nýloknu tímabili. Hólmfríður hefur átt mjög farsælan feril með landsliðum Íslands. Hún lék með öllum yngri landsliðunum. Fjóra U-17 landsleiki, átta U-19 leiki, fjórtán U-21 leiki. Hólmfríður hefur verið í A-landsliðinu frá því 2003 og hefur spilað 110 leiki og skorað 37 mörk í þeim landsleikjum.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Körfubolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Körfubolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Fleiri fréttir Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Sjá meira