Segja Samsung ekki vita hvað sé að Galaxy Note 7 Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 12. október 2016 15:35 Virði hlutabréfa Samsung hafa fallið í morgun. Vísir/Getty
Samsung hefur ekki komist að því hvað nákvæmlega veldur því að Samsung Galaxy Note 7 sími fyrirtækisins geti ofhitnað og sprungið að mati heimildarmanna New York Times. Kóreski tæknirisinn hefur lent í miklum vandræðum vegna símans allt frá því að fyrsti síminn sprakk í ágúst.Ítarlega er farið yfir málið á vef New York Times. Þar segir að Samsung hafi látið hundruð starfsmanna komast að því hvað ylli því að síminn gæti sprungið eftir að upp komst um fyrsta tilfellið í águst.Sjá einnig: Samsung sendi eigendum Galaxy Note 7 skringilega kassaÞessar tilraunir hafi þó ekki skilað endanlegum niðurstöðum, enginn þeirra sem var settur í málið tókst að fá síma til þess að springa. Verkfræðingar mátu þó stöðuna svo að vandamálið væri líklega tengt ákveðinin gerð battería frá einni verksmiðju. Í kjölfarið var síminn endurkallaður í stórum stíl en sala hélt áfram eftir að gengið var úr skugga um að batteríin sem Samsung taldi vera gölluð væru komin úr umferð. Þetta virðist þó ekki hafa skilað tilætluðum árangri en nýlega bárust fregnir af því að einn af þeim símum sem var skipt út fyrir gallað eintak hafi sprungið. Tæknimenn og verkfræðingar Samsung fóru því aftur að teikniborðinu til að að reyna að komast að því hver ástæðan væri. Samkvæmt heimildarmanni New York Times hefur þeim enn ekki tekist að komast að því hvað nákvæmlega veldur því að síminn eigi það til að springa. Sjá einnig: Samsung hættir sölu Galaxy Note 7Ákveðið var í gær að hætta alfarið framleiðslu og sölu á símanum vegna gallans. Í frétt New York Times segir að það sé afar óvenjulegt í tækniiðnaðinum að stórfyrirtæki hætti að framleiða glænýja vöru. Vandræði tengd símanum, sem átti að vera flaggskip Samsung á símamarkaði hafa haft mikil áhrif á fyrirtækið. Greinendur gera ráð fyrir því að skaðinn gæti verið um 17 milljarðar dala. Þá hafi vörumerki Samsung einnig orðið fyrir miklum skaða og mögulegt er að vandinn muni hafa áhrif á framtíðartekjur fyrirtækisins. Hér að neðan má sjá umfjöllun New York Times um málið.
Tækni Mest lesið Prakkarastrik loks opinberað: „Það leiðréttist hér með!“ Atvinnulíf Vænta 50 punkta lækkunar en telja 25 punkta líklega Viðskipti innlent Vænta þess að eigendur hússins leysi málið Viðskipti innlent Milla ráðin rekstrarstjóri hjá Ólafi Darra og félögum Viðskipti innlent „Alltaf hægt að sjá tækifæri og fleira gott í stöðunni“ Atvinnulíf Leggja til lagabreytingu sem leysir af penna og pappír Viðskipti innlent 37,5 milljarðar í hagnað og nítján í arð Viðskipti innlent Um fimmtíu verið sektuð fyrir að greiða ekki rétt fargjald Neytendur Birgir hættir hjá Skaga Viðskipti innlent Fólk muni eiga meira eftir í buddunni um mánaðamótin Neytendur Fleiri fréttir Gervigreind fyrir klink veldur Bandaríkjamönnum hausverk Kínversk kúvending leiddi til hruns vestanhafs Enn deila Musk og Altman MrBeast gerir tilboð í TikTok Eftirmaður Norman yfir LIV-mótaröðinni fundinn Höfða mál gegn Musk vegna kaupanna á Twitter Vilja banna farþegum að fá sér þriðja drykkinn á flugvellinum Meta birtir óumbeðnar gervigreindarmyndir af notendum Instagram Biden stöðvar japanska yfirtöku á US Steel Næstum allir nýir bílar í Noregi rafmagnsbílar Sjá meira