Lilja íhugar framboð til varaformanns Atli Ísleifsson skrifar 14. september 2016 09:00 Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra.
Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra íhugar að bjóða sig fram til varaformanns í Framsóknarflokknum. Hún segist hafa fengið áskoranir, en hún hafi þó enn ekki tekið ákvörðun um framboð. „Það kemur allt til greina þegar maður er í pólitík, en nú mun ég einbeita mér að því að ná góðu kjöri í Reykjavíkurkjördæmi suður,“ sagði Lilja í viðtali í Bítinu í morgun. Lilja segist styðja núverandi forystu flokksins og mjög bjartsýn á að flokknum muni ganga vel. „Árangur ríkisstjórnarinnar á þessu kjörtímabili er óumdeildur. Ég held að þegar kosningabaráttan byrjar þá muni kjósendur horfa til þess. Við vitum hvað við höfum. Við vitum ekki hvað við fáum.“ Hún segir alls óvíst hvort verði kosið um formann í Framsóknarflokknum á þessari stundu. „Það hefur enginn sagst ætla að bjóða sig fram á móti Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni flokksins,“ sagði Lilja. Þetta er þó ekki allskostar rétt hjá Lilju þar sem Sveinbjörn Eyjólfsson, forstöðumaður Nautastöðvar Bændasamtakanna, hefur sagst munu bjóða sig fram til formennsku í flokknum, ákveði Sigurður Ingi að bjóða sig ekki fram gegn Sigmundi. Segist hann vilja tryggja að kosið verði um formann í flokknum á flokksþinginu sem fram fer 1 og 2. október næstkomandi. Gunnar Bragi Sveinsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur einnig sagst íhuga framboð til varaformanns í flokknum.
Kosningar 2016 Tengdar fréttir Íhugar varaformannsframboð Gunnar Bragi Sveinsson segir að til greina komi að bjóða sig fram til varaformanns Framsóknarflokksins. Hann mun ekki styðja Sigurð Inga sem formann og telur rétt að Sigmundur Davíð verði áfram í forystu. 14. september 2016 06:30 Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Sjá meira
Íhugar varaformannsframboð Gunnar Bragi Sveinsson segir að til greina komi að bjóða sig fram til varaformanns Framsóknarflokksins. Hann mun ekki styðja Sigurð Inga sem formann og telur rétt að Sigmundur Davíð verði áfram í forystu. 14. september 2016 06:30