Rúnar Már og félagar áfram eftir framlengingu | AIK úr leik Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. ágúst 2016 19:41 Rúnar Már í leiknum í kvöld. vísir/epa
Rúnar Már Sigurjónsson og félagar í svissneska liðinu Grasshopper komust áfram í 4. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar eftir 3-3 jafntefli við Apollon frá Kýpur. Grasshopper vann fyrri leikinn á heimavelli 2-1 og hafði því nauma forystu fyrir seinni leikinn á Kýpur í kvöld. Staðan eftir venjulegan leiktíma í leiknum í kvöld var 2-1, Apollon í vil, og því þurfti að framlengja. Rúnar Már fór af velli í uppbótartíma venjulegs leiktíma. Abraham Gneki Guie kom Apollon í 3-1 á 101. mínútu en aðeins tveimur mínútum síðar jafnaði Brasilíumaðurinn Caio metin og Grasshopper því í góðri stöðu. Nikola Gjorgjev, 18 ára Makedóníumaður, gulltryggði svo sætið í 4. umferðinni þegar hann skoraði þriðja mark Grasshopper í uppbótartíma framlengingarinnar. Svisslendingarnir fóru áfram, samanlagt 5-4. Haukur Heiðar Hauksson var á sínum stað í stöðu hægri bakvarðar hjá AIK þegar liðið tapaði 0-2 fyrir Panathinaikos á heimavelli. Grikkirnir unnu fyrri leikinn á sínum heimavelli með einu marki gegn engu og einvígið því samanlagt 3-0. Staðan var markalaus í hálfleik en strax á upphafsmínútu seinni hálfleik kom Kólumbíumaðurinn Victor Ibarbo Panathinaikos yfir. Svíinn Marcus Berg átti stoðsendinguna og hann skoraði svo annað mark Grikkjanna á 73. mínútu og kláraði leikinn.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Átti Henderson að fá rautt spjald? Enski boltinn Stól kastað í höfuð markmanns Aberdeen Fótbolti Löggan óskaði Hildigunni til hamingju Handbolti „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Enski boltinn Dagskráin í dag: Tryggir Tindastóll titilinn? Sport Mögnuð stemmning þegar Valskonur tryggðu sér Evrópubikarinn Handbolti „Leikmenn fá frípassa til þess að meiða í pirringi“ Fótbolti Sýning hjá Viktori Gísla í stórsigri Wisla Plock Handbolti Scheffler tók forystuna fyrir lokadaginn Golf Engin Meistaradeild hjá Hákoni Arnari Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu glæsimark Úlfu, stórsigur Stólanna, sjóðheita Þróttara og Þór/KA þrennuna Átti Henderson að fá rautt spjald? Stól kastað í höfuð markmanns Aberdeen „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Engin Meistaradeild hjá Hákoni Arnari „Leikmenn fá frípassa til þess að meiða í pirringi“ Stórsigur Stólanna í Víkinni Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn „Sjálfum okkur verstar” Glæsimark frá Úlfu tryggði Stjörnunni stigin þrjú Uppgjörið: Þróttur - FH 4-1 | Sjóðheitir Þróttarar völtuðu yfir FH Dortmund náði sætinu á síðustu stundu Uppgjörið: Fram - Þór/KA 1-3 | Tvö mörk frá Söndru Maríu í sigri Þór/KA Gleymdu búningum svo bæði liðin eru merkt Stjörnunni „Verður stærsti dagur ævi minnar“ „Talar ekki um eggið fyrr en hænan er búin að verpa“ Real staðfestir kaupin á Huijsen fyrir 8,7 milljarða Fulltrúar UEFA gengu út eftir að Infantino mætti seint Sjáðu mörkin: Berglind í hefndarhug með fleiri en allt Valsliðið í sumar Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Sætur sigur HK og Vilhelm bjargaði stigi fyrir ÍR Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri „Þurfa allar og við þjálfararnir að líta í eigin barm“ Villa ekki í vandræðum með Spurs og stefnir aftur í Meistaradeildina Uppgjörið: Breiðablik - Valur 4-0 | Berglind refsaði gamla liðinu í stórsigri Íslenskt mark, sjálfsmark og rautt spjald Óðs manns æði Arnars: „Ég ætla samt að gera þetta“ Aron á að hjálpa leikmönnum að hugsa ekki um ströndina Selirnir verða heiðursgestir á fyrsta heimaleik KR Svona var blaðamannafundur Arnars Sjá meira