Stjarnan kláraði Hauka | Breiðablik lét eitt mark duga Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. júlí 2016 21:14 Donna Kay Henry skoraði annað mark Stjörnunni í upphafi seinni hálfleiks. vísir/anton
Stjarnan og Breiðablik komust nú rétt í þessu í undanúrslit Borgunarbikars kvenna. Stjörnukonur, bikarmeistarar síðustu tveggja ára, unnu öruggan 4-0 sigur á 1. deildarliði Hauka á Samsung-vellinum í Garðabæ. Jenna McCormick kom Stjörnunni í 1-0 á 6. mínútu og þannig var staðan í hálfleik. Donna Kay Kenry bætti öðru marki við á 49. mínútu en hún er komin með þrjú mörk í Borgunarbikarnum í ár. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir skoraði þriðja markið á 71. mínútu og varamaðurinn Katrín Ásbjörnsdóttir átti svo síðasta orðið þegar hún skoraði fjórða mark Stjörnunnar tveimur mínútum fyrir leikslok. Íslandsmeistarar Breiðabliks tóku á móti grönnum sínum í HK/Víkingi og létu eitt mark duga. Það gerði Arna Dís Arnþórsdóttir á 37. mínútu en þetta var hennar fyrsta mark fyrir Breiðablik í deild og bikar. Arna byrjaði tímabilið í láni hjá FH en sneri aftur í Kópavoginn undir lok síðasta mánaðar. Blikar voru mun sterkari aðilinn í leiknum á Kópavogsvelli í kvöld og fengu m.a. 19 hornspyrnur. Íslandsmeisturunum tókst samt bara einu sinni að koma boltanum framhjá Björk Björnsdóttur í marki HK/Víkings. Stjarnan, Breiðablik, Þór/KA og ÍBV eru komin í undanúrslit en dregið verður í hádeginu á morgun.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti „Hefurðu enga sómakennd?“ Fótbolti Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember Körfubolti Hefur Ben Simmons náð botninum? Körfubolti Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn Russell á ráspól í fyrramálið Formúla 1 Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Fótbolti Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Íslenski boltinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Fótbolti Andy Murray þjálfar erkióvininn Sport Fleiri fréttir Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Hermann Hreiðars tekur við HK Sjá meira