Hægt að borða íslenska landsliðsbúninginn í Annecy Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. júní 2016 17:00
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta er með höfuðstöðvar sínar í Annecy á meðan íslenska liðið er að keppa á Evrópumótinu í Frakklandi. Annecy er fimmtíu þúsund manna bæ í frönsku ölpunum sem hefur fengið nafnið perla frönsku alpanna. Það fer því vel um íslenska hópinn á Evrópumótinu en það fer ekkert framhjá hjá íbúum Annecy að Ísland er með aðsetur í bænum. Verslunareigendur og veitingamenn í bænum bjóða upp á íslenskan varning á meðan Evrópumótinu stendur. Knattspyrnusamband Íslands fann sem dæmi afar þjóðlegan og skemmtilegan súkkulaðibúning á einum staðnum. Hilmar Þór Guðmundsson, fjölmiðlafulltrúi KSÍ á Evrópumótinu í Frakklandi, fékk Hafliða Breiðfjörð, framkvæmdastjóra fótbolta.net, til að sitja fyrir og skellti myndinni síðan inn á Twitter-síðu Knattspyrnusambands Íslands. Það er ekki frá því að undirrituðum langi að smakka svona sérstakan eftirrétt og það er næstum því öruggt að flestir Íslendingar muni leita hann uppi verði þeir á ferðinni í Annecy á næstu dögum. Það fylgdi reyndar ekki sögunni hvernig íslenska landsliðstreyjan smakkaðist. Ísland mun æfa í Annecy næstu þrjá daga og flytur sig síðan yfir til Saint-Étienne á mánudagsmorguninn.Það má finna allskyns íslenskan varning í Annecy þar sem landsliðið dvelur. T.d. þennan súkkulaðibúning#em2016 #ISL pic.twitter.com/6XrnKDENlM— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) June 9, 2016
EM 2016 í Frakklandi Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið Metinn á rúmlega 17 milljarða fyrr á árinu en má nú fara á láni Enski boltinn Laumaði hauskúpu afa síns inn á úrslitaleikinn Fótbolti „Gætu gert hrikalega góða hluti með íslenska landsliðið“ Fótbolti Spiluðu deildina hundrað þúsund sinnum og reiknuðu sigurlíkur liðanna Handbolti Ótrúleg endurkoma Feyenoord í Manchester Fótbolti „Við erum brothættir“ Fótbolti Dagný gleymd eða afskrifuð?: Hefur ekkert heyrt í landsliðsþjálfaranum Fótbolti Slot mætti með Salah brandara á blaðamannafundinn Sport Dagskráin í dag: Stórleikur á Anfield, Bónus deild kvenna og margt fleira Sport Tvær tvöfaldar þrennur í sigrum Tindastóls og Þórs Akureyrar Körfubolti Fleiri fréttir Dagný gleymd eða afskrifuð?: Hefur ekkert heyrt í landsliðsþjálfaranum „Gætu gert hrikalega góða hluti með íslenska landsliðið“ Metinn á rúmlega 17 milljarða fyrr á árinu en má nú fara á láni Laumaði hauskúpu afa síns inn á úrslitaleikinn „Við erum brothættir“ „Höfum sýnt að þetta er getustigið sem við getum spilað á“ Lewandowski sá þriðji til að skora hundrað Meistaradeildarmörk Atlético skoraði sex Ótrúleg endurkoma Feyenoord í Manchester Skytturnar léku á als oddi Eiður Aron áfram á Ísafirði Hareide þarf að leggjast undir hnífinn Liverpool væri bara í þrettánda sæti án markanna hans Mo Salah Andri Rúnar í Stjörnuna Hvorki Arnar né Freyr heyrt frá KSÍ Kæra framleiðendur Lionel Messi drykkjarins fyrir stuld Arnar betur í stakk búinn en Eyjólfur og Arnar Þór Aðeins Heimir og Lagerbäck með betri árangur á öldinni „Fann brosið mitt á ný“ Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Carragher segir Salah vera eigingjarnan Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Elías Rafn hélt hreinu þegar meistararnir jöfnuðu toppliðið að stigum Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Sjá meira