Yngstur til að skora fyrir Breiðablik | Sló met þjálfarans Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. maí 2016 13:00 Ágúst sló 28 ára gamalt met þjálfara síns þegar hann skoraði gegn Kríu. vísir/blikar.is/stefán
Breiðablik tryggði sér í gær sæti í 16-liða úrslitum Borgunarbikars karla með 0-3 sigri á Kríu á Valhúsahæðavelli. Arnar Grétarsson, þjálfari Breiðabliks, skipti út öllu byrjunarliði sínu frá 1-0 sigrinum á KR á sunnudaginn og það tók Blika 62 mínútur að brjóta ísinn gegn 4. deildarliðinu. Guðmundur Atli Steinþórsson skoraði fyrsta markið með frábæru skoti og þeir Ágúst Eðvald Hlynsson og Arnþór Ari Atlason bættu við mörkum áður en yfir lauk. Ágúst Eðvald lék sinn fyrsta alvöru leik fyrir Breiðablik í gær og hélt upp á áfangann með laglegu marki. Hann varð þar með yngsti leikmaðurinn til að skora fyrir Breiðablik í opinberri keppni en Ágúst er 16 ára gamall og tveggja mánaða gamall (fæddur 28. mars 2000). Frá þessu er greint á stuðningsmannasíðu Breiðabliks, blikar.is. Ágúst sló þar með 28 ára gamalt met þjálfara síns, Arnars Grétarssonar, sem skoraði sitt fyrsta meistaraflokksmark fyrir Breiðablik, gegn ÍR árið 1988, þegar hann var 16 ára og þriggja mánaða gamall. Viktor Unnar Illugason, núverandi leikmaður Þróttar, er þriðji yngsti leikmaðurinn sem skorar fyrir Breiðablik en hann gerði fjórða mark Blika í 4-1 sigri á ÍBV fyrir tíu árum. Blikar mæta ÍA í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar en næsti leikur þeirra í Pepsi-deildinni er gegn Stjörnunni.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Orðfærið og dónaskapurinn með ólíkindum“ Handbolti „Hallærislegasta smjaður sem íþróttaheimurinn hefur nokkurn tíma séð“ Fótbolti Fá ekki hollensku stjörnuna til að yfirgefa rándýra hótelsvítu Fótbolti „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Íslenski boltinn Goðsögnin sem tortímdi ferlinum handtekinn í Dúbæ og framseldur Sport Ronaldo útskýrir skrópið sitt í jarðarför Diogo Jota Fótbolti Ingibergur hættir sem formaður: „Miklar tilfinningar innra með mér“ Körfubolti Albert mættur aftur til Flórens og fær nýjan þjálfara í dag Fótbolti Slot segir að Isak sé byrjaður aftur að æfa en bað um eitt Enski boltinn Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Sjá meira