Clattenburg dæmir tvo úrslitaleiki í maí Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. maí 2016 15:15 Mark Clattenburg hefur verið frábær í Meistaradeildinni. Vísir/Getty
Enski dómarinn Mark Clattenburg hefur átt mjög gott tímabil og hann er líka að uppskera nú í mánuði stóru leikjanna í fótboltanum. Pierluigi Collina, yfirmaður dómaramála hjá UEFA, hefur ákveðið að Mark Clattenburg dæmi úrslitaleik Meistaradeildarinnar sem fer fram á San Siro í Mílanó 28. maí næstkomandi. Madrídar-liðin Real og Atletico mætast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í annað skiptið á þremur árum. Það verður þó ekki eini stórleikur kappans í mánuðinum því sjö dögum fyrr mun hann dæma bikarúrslitaleik Manchester United og Crystal Palace á Wembley. Mark Clattenburg verður með þessu fyrsti dómarinn sem dæmir þessa tvo leiki á sama tímabilinu. Mark Clattenburg er 41 árs gamall og dæmdi sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni árið 2004. Hann hefur verið alþjóðlegur dómari síðan 2007. Mark Clattenburg var aðstoðarmaður á EM 2012, dæmdi úrslitaleik karla á Ólympíuleikunum í London 2012 og er einn af átján dómurum sem munu dæma á EM í Frakklandi í sumar. Mark Clattenburg gæti því kannski fengið að dæma þriðja úrslitaleikinn fari hann alla leið á Evrópumótinu og enska landsliðið kemst ekki í úrslitaleikinn í París.Hér gengur mikið á hjá Mark Clattenburg.Vísir/Getty
Enski boltinn Fótbolti Meistaradeild Evrópu Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira