Lífið

Eyddi yfir 300 þúsund krónum í stera á mánuði

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Rich segist aldrei hafa verið hamingjusamari en þessa daganna, enda nýgiftur Söru Heimisdóttur.
Rich segist aldrei hafa verið hamingjusamari en þessa daganna, enda nýgiftur Söru Heimisdóttur. Vísir
Vöðvatröllið Rich Piana, sem er Íslendingum kunnur eftir að hann gekk í hjónaband með Söru Heimisdóttur viðurkennir í nýlegri umfjöllun um hann í Daily Mail er fjallað um gífurlega steranotkun hans frá 18 ára aldri. Í dag er hann 45 ára og segist aldrei hafa verið hamingjusamari.

Piana er mjög opinskár um steranotkun sína og talar reglulega um hana á Youtube-rás sinni sem hefur fjölda fylgjenda. Á Instagram reikning sínum hefur hann meðal annars birt stera-kúr, eða eins konar uppskrift hvaða stera sé best að taka með hvaða æfingum og svo framvegis til þess að ná sem bestum árangri. Aðrir vaxtaræktarmenn hafa biðlað til Rich um að hætta steranotkun sinni þar sem þeir óttast um hvaða áhrif hún hafi á heilsu hans.

Rich segir að vaxtarræktakeppnir orðnar það harðar að menn verði hreinlega að taka stera ætli þeir sér að ná einhverjum árangri. Hann segist hafa verið að eyða rúmlega 300 hundruð þúsund krónum í stera á mánuði þegar notkunin var sem mest.

Rich keppir ekki lengur í vaxtarækt en vinnur fyrir sér með því að búa til vaxtarræktarmyndbönd og með því að sitja fyrir í auglýsingum.


Tengdar fréttir

Sara Heimis rosaleg í ræktinni - Myndband

Sara Heimisdóttir, 26 ára Íslendingur, og Rich Piana, 44 ára, vaxtaræktarmaður frá Bandaríkjunum, gengu í það heilaga þann 17. september síðastliðin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.