Liverpool græddi 53 milljónir á sigri Manchester City í fyrrakvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. apríl 2016 10:30 Raheem Sterling í leik með Manchester City á móti Liverpool. Vísir/Getty
Sigur Manchester City á Paris Saint Germain var ekki aðeins góður fyrir gjaldkera Manchester City því kollegi hans hjá Liverpool gat einnig farið að telja peninga inn í kassann eftir að City sló út PSG. Manchester City komst í undanúrslit í fyrsta sinn í sögu félagsins með því að vinna 1-0 sigur í síðari leiknum á móti frönsku meisturunum. Manchester City keypti Raheem Sterling frá Liverpool á 49 milljónir síðasta sumar en hluti af kaupverðinu voru ákvæði um árangurstengda bónusa. Liverpool fékk 44 milljónir punda strax frá City en gæti fengið fimm milljónir í viðbót ef Sterling spilar nógu marga leiki og City nær ákveðnum markmiðum. Chris Bascombe á Daily Telegraph segir frá stöðu mála í frétt sinni í dag og það skrifar hann einnig um það að Liverpool gæti fengið enn meira á næstunni fari svo að Manchester City komist alla leið í úrslitaleikinn. Liverpool fær 300 þúsund pund frá Manchester City nú þegar City er komið í undanúrslit Meistaradeildarinnar. Það eru meira en 53 milljónir íslenskra króna. Raheem Sterling sjálfur gat þó ekki hjálpað til í leiknum því hann er meiddur á nára og óleikfær. Hann á möguleika á að ná úrslitaleiknum en er ekki líklegur til að spila undanúrslitaleikina. Komist Manchester City alla leið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar er því von á annarri góðri upphæð til Liverpool. Liverpool-menn hljóta því að halda með Manchester City í komandi leikjum liðsins í Meistaradeildinni þótt að margir þeirra séu enn að gráta brotthvarf Raheem Sterling frá Anfield.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira