Nicklas Bendtner sektaður vegna myndar við hlið Benz bíls Finnur Thorlacius skrifar 23. febrúar 2016 14:29 Bendtner enn eina ferðina búinn að koma sér í vandræði.
Fótboltamaðurinn og Daninn Nicklas Bendtner hefur ávallt verið talinn skrautlegur karakter en hann spilar nú með Wolfsburg í Þýskalandi en var áður á mála hjá Arsenal. Hann er þekktur fyrir ýmis skrítin ummæli og athafnir og nú hefur hann enn einu sinni komið sé í klandur. Hann birti mynd af sér á Instagram fyrir stuttu þar sem hann stendur við hlið Mercedes Benz bíls sem á öllu virðist að hann hafi keypt sér. Það væri svo sem í fínu lagi ef Wolfsburg liðið væri ekki í eigu Volkswagen og allir leikmenn Wolfsburg eru bundnir samningum sem meðal annars kveða á um að þeir séu ekki að birta myndir af sér við bíla annarra bílaframleiðenda. Volkswagen mun sekta Bendtner fyrir þennan gjörning og lái hver þeim það sem vill. Bendtner varð sjálfum sér að athlægi fyrir nokkrum árum er hann veifaði sínu heilagasta útí umferðina til að krækja sér í leigubíl. Hann var einnig sektaður af UEFA fyrir að vera í vitlausum lit af undirbuxum í leik og hann var einnig handtekinn eitt sinn er hann reyndi að brjóta upp hurð á eigin húsi þar sem honum langaði svo í sund. Hann varð líka örlítið umdeildur þegar hann fullyrti að hann ætlaði að verða besti fótboltamaður heims, en frægðarsól hans hefur lækkað nokkuð frá Arsenal dögum sínum þó hann enn skori mörk fyrir Wolfsburg og stöku sinnum fyrir danska landsliðið. Bendtner mætti lesa smáa letrið í samningum sínum betur í framtíðinni.Bendtner í búningi Wolfsburg með stórt Volkswagen merki á treyjunni.
Mest lesið Læknir ekki séð aðra eins áverka á þrjátíu ára starfsferli Innlent Átta ungmenni handtekin í Seljahverfi Innlent „Sleppið föngunum núna eða ykkar mun bíða helvíti“ Erlent Íslendingar eigi eitt tromp gegn Trump Innlent Ömmur og afar Bryndísar Klöru: „Tími aðgerða þegar liðinn“ Innlent Segir Kínverja munu „berjast til hins síðasta“ í stríði við Bandaríkin Erlent Anna Kristín Arngrímsdóttir er látin Innlent Sendiherra látinn fjúka vegna brandara á kostnað Trump Erlent Langflest börn brjóti ekki aftur á öðrum börnum eftir meðferð Innlent Þurfti þrjár tilraunir til að lenda í Keflavík Innlent