Challenger Hellcat frá Hennessey er 1.032 hestöfl Finnur Thorlacius skrifar 24. febrúar 2016 15:38 Dodge Challenger Hellcat er í grunninn 707 hestöfl.
Dodge Challenger og Charger með Hellcat vélinni eru 707 hestöfl og þykir mörgum nóg um, enda öflugustu fjöldaframleiddu bílar Bandaríkjanna. Það þykir breytingafyrirtækinu Hennessey ekki nóg og hefur aukið afl þeirra verulega og ná nú 1.032 hestöflum úr þessari 6,2 lítra vél með keflablásara. Hennessey hefur bætt við tveimur forþjöppum og aukið með því afl hennar um 325 hestöfl, sem þætti nú ágætt í flestum bílum eitt og sér. Með allt þetta afl eru bílarnir aðeins 2,7 sekúndur í hundraðið og hann fer kvartmíluna á 9,9 sekúndum með 228 km endahraða. Þessa bíla hafa Hennessey menn nefnt HPE1000 og merkja þá í bak og fyrir með eigin merki. Á vélinni er merking sem segir til um hvaða tæknimaður sá um breytingu hennar. Verðið á herlegheitunum er ekki svo hátt, eða um 55.000 dollarar, eða 7,2 milljónir króna. Það þætti mörgum ekki svo hátt verð fyrir yfir 1.000 hestafla bíl sem sennilega hefur mikið söfnunargildi í framtíðinni þar sem Hennessey mun ekki smíða marga slíka bíla.Dodge Charger Hellcat.
Mest lesið „Þetta er bara það sem aðrir hópar hjá okkur hafa fengið í gegnum tíðina“ Innlent Lítil huggun í svörum sendiráðsins og íþróttafólki hótað lífstíðarbanni Innlent Engin röð á Læknavaktinni Innlent Nágranni vill banna kylfingum að nota veginn að Bakkakotsvelli Innlent Vilja að RÚV feti í fótspor Slóveníu Innlent Ógeðslega stoltur af kennurum Innlent Leggur til íslenskan her, leyniþjónustu og herskyldu Innlent Kjarasamningur kennara í höfn Innlent Hugsi yfir ríflegum launahækkunum kennara Innlent Vilja hvalkjöt af matseðlinum Innlent