United tapaði í Herning | Sjáðu mörkin Tómas Þór Þórðarson skrifar 18. febrúar 2016 19:45 Anthony Martial í leiknum í kvöld. vísir/getty
Manchester United heldur áfram að valda stuðningsmönnum sínum ævintýralegum vonbrigðum, en liðið tapaði fyrir Midtjylland í fyrri leik liðanna í 32 liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld. Varnarleikur Manchester United var ekki til útflutnings í kvöld, en liðið komst yfir með marki Memphis Depay á 37. mínútu skömmu eftir að Danmerkurmeistararnir klúðruðu dauðafæri. United hélt ekki forskotinu út hálfleikinn því Pione Sisto jafnaði metin á 44. mínútu með skoti sem Sergio Romero, markvörður Manchester United, hefði að öllum líkindum átt að verja. Romero stóð vaktina í marki Manchester United í kvöld vegna meiðsla Davids De Gea sem spænski markvörðurinn varð fyrir í upphitun. Leikurinn var opinn og skemmtilegur í seinni hálfleik. Danmerkurmeistararnir fengu sín færi og skoruðu sigurmarkið á 77. mínútu þegar Paul Onuachu skoraði með skoti fyrir utan teig, 2-1. United þarf að vinna 1-0 sigur á heimavelli sínum til að fara áfram, en glæsileg úrslit hjá Midtjylland í lang stærsta leik félagsins frá upphafi.Memphis kemur United í 0-1: Pione Sisto jafnar í 1-1: Sigurmark Midtjylland:
Evrópudeild UEFA Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Fleiri fréttir Gegndrepa Jón Þór bíður sólarinnar Orri og félagar tolleruðu heimsmeistarann sinn Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Er nýi Haaland íslenskur? Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Víkingarnir halda toppsætinu Segir Paredes ekki eiga að fá bann þrátt fyrir að hafa ráðist á sig Casemiro orðinn leikmaður Inter Miami Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki „Okkur vantar klárlega kantmann“ Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Hansen sá hamingjusamasti í Víkinni „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Allir íslensku Evrópuleikirnir á Sýn Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Sjá meira