„Við erum með risaskjá bak við sviðið með teiknimyndum sem segja okkur hvar við erum, og fer með okkur niður í holur og yfir hóla og hæðir.“
Heiðdís Norðfjörð samdi söguna um hagamúsina Pílu pínu, óf hana utan um ljóð eftir Kristján frá Djúpalæk og hún og Ragga Gísla sömdu lög við ljóðin sem komu út á plötu 1980.
Heiðdís skrifaði líka leikgerð sem búin er að liggja í skúffu í áratugi að sögn Söru. „Jón Páll Eyjólfsson leikhússtjóri gróf efnið upp, vissi hversu vandað það er og mikið „költ“ og bauð mér að líta á það. Ég og bekkjarsystir mín úr leiklistarskólanum, Sigrún Huld Skúladóttir, unnum nýja leikgerð sem er í takt við samtímann en við vorum þó trúar texta Heiðdísar.
Píla pína kemst að því í upphafi að mamma hennar er döpur vegna þess að hún þurfti að flýja stríð þegar kötturinn kom og hún veit ekkert hvað varð um fjölskylduna svo litla músin leggur í ferðalag til að reyna að finna hana. Við gerðum aðeins meira úr hetjunni okkar en í fyrri útgáfu og gáfum henni fleiri þrautir að leysa.“

„Textarnir halda sér og öll lögin sem voru á plötunni. Nokkrir sem hafa labbað inn á æfingar sperra eyrun þegar þeir heyra lögin, muna eftir þeim frá því „í gamla daga“ og fyllast gleði.
Við erum með kór og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í tónlistarflutningnum með leikurunum, þar sem Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir er í titilhlutverkinu og Þórunn Lárusdóttir leikur mömmuna.
Þetta er viðamesta sýningin hér á Akureyri í vetur og fyrsta stóra verkefnið sem unnið er af Menningarfélagi Akureyrar – MAk sem varð til eftir sameiningu sinfóníunnar, leikfélagsins og Hofs,“ segir Sara og bendir á síðuna mak.is.
Leikendur í Pílu pínu eru:
Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir, Þórunn Lárusdóttir, Benedikt Karl Gröndal, Saga Jónsdóttir, Kjartan Darri Kristjánsson, Eik Haraldsdóttir, Eyþór Daði Eyþórsson, Bjarklind Ásta Brynjólfsdóttir, Freysteinn Sverrisson og Jón Páll Eyjólfsson.