
Borgun á von á fimm milljörðum í peningum vegna sölunnar á Visa Europe

Þetta kemur fram í svari Borgunar við fyrirspurn Landsbankans frá því fyrir helgi, þar sem bankinn spyr hvort upplýsingar hafi legið fyrir um rétt Borgunar til söluhagnaðar þegar kynningarfundir voru haldnir vegna fyrirhugaðrar sölu bankans á hlutum sínum í Borgun.
Landsbankinn seldi rúmlega þrjátíu prósenta hlut í fyrirtækinu fyrir 2,2 milljarða til stjórnenda og hóps fjárfesta árið 2014 en salan hefur sætt talsverðri gagnrýni að undanförnu. Hluturinn var ekki boðinn út og því ekki á allra færi að bjóða í hann.
Þá setti bankinn ekki skilyrði við söluna að ef kaupum á Visa Europe yrði myndu greiðslur sem Borgun fengi renna til Landsbankans í samræmi við hlut bankans. Það gerði hann hins vegar þegar bankinn seldi 38 prósenta hlut sinn í Valitor til Arion banka þremur vikum síðar.
Bankinn hefur borið því fyrir sig að hann hafi haft takmarkaðar upplýsingar um Borgun þegar eignarhluturinn var seldur. Borgun sagði í yfirlýsingu í gær að bankinn hafi haft aðgang að öllum gögnum í tengslum við söluna.
Í svarinu í dag segir svo að Borgun eigi von á því að 33,9 milljónir evra í peningum við fullnustu sölunnar á Visa Europe. Sömuleiðis fái fyrirtækið forgangshlutabréf í Visa Inc. og afkomutengda greiðslu árið 2020. Borgun mun færa upp mat sitt á eignarhlut sínum í Visa Europe í lok árs 2015 um 38,6 milljónir evra, tæplega 5,5 milljarða króna.
Svar Borgunar til bankans má finna í viðhengi við þessa frétt.
Tengdar fréttir

Landsbankinn hafnar ásökunum um óheilindi við söluna á Borgun
Bankinn hefur sent Alþingi greinargerð vegna sölunnar.

Landsbankinn hefur ekki fengið svör frá Borgun
Landsbankinn segist ekki hafa haft vitneskju um að Borgun ætti rétt til greiðslna vegna valréttar í tengslum við samruna Visa Inc. og Visa Europe, kæmi til þess að hann yrði virkjaður.

Borgun metin á allt að 26 milljarða króna
Kortafyrirtækið Borgun er metið á allt að 26 milljarða samkvæmt nýju virðismati sem endurskoðunarfyrirtækið KPMG hefur unnið fyrir stjórn Borgunar.

Landsbankinn hafði allar upplýsingar um Borgun samkvæmt Borgun
Sérstakt gagnaherbergi var útbúið í tengslum við söluna á eignarhlut ríkisbankans í fyrirtækinu árið 2014.

Bankasýslan óskar eftir upplýsingum frá Landsbankanum
Bankasýsla ríkisins hefur óskað eftir upplýsingum fra Landsbankanum um hvernig staðið var að sölunni á Borgun. Bref þessa efnis var sent Landsbankanum i gær. Þetta kom fram i máli Lárusar Blöndal stjórnarformanns Bankasýslunnar þegar hann mætti a fund fjárlaganefndar i morgun.