Norðanáttin gæti náð sér á strik síðdegis í Vesturbænum Birgir Olgeirsson skrifar 29. janúar 2016 09:51 Búast má við köldu veðri í dag og næstu daga. Vísir/vilhelm
Í dag verður norðaustanátt á landinu og má búast við vindhraða á bilinu 10 til 15 metra á sekúndu. Veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir að stærstur hluti höfuðborgarsvæðisins verði í skjóli af Esjunni fram eftir degi en norðanáttin gæti náð sér á strik síðdegis, sér í lagi í Vesturbænum. Norðaustan til á landinu mun vindurinn láta bíða eftir sér fram að hádegi. Búast má við éljagangi fyrir norðan sem ágerist þegar líður á daginn. Annars staðar verður úrkomulaust að mestu. Veðurfræðingurinn minnist þó á að skammt suður af landinu sé snjókomubakki sem gæti dreift úr sér um tíma allra syðst. Búast má við frosti, 3 – 8 stigum, í dag. Næstu dagana verður norðanáttin allsráðandi og áfram kalt. Fyrir norðan og austan, mun snjóa en lítil sem engin úrkoma um landið sunnanvert. Norðanáttin gæti orðið hvöss á mánudaginn, en hægari hina dagana.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ sunnudag:Norðan 8-13 m/s og víða bjartviðri, en dálítil él við sjávarsíðuna. Frost 3 til 10 stig.Á mánudag:Norðaustan 13-18 m/s og éljagangur, en hægara og bjartviðri syðra. Frost 0 til 5 stig.Á þriðjudag:Norðvestan 13-15 m/s og él A-lands, en annars hægara og úrkomulítið. Harðnandi frost.Á miðvikudag:Hægviðri og léttskýjað framan af degi, en síðan vaxandi austanátt og él við S-ströndina. Talsvert frost um land allt.Á fimmtudag og föstudag:Útlit fyrir ákveðna norðaustanátt með éljum eða snjókomu, en úrkomulítið SV-til. Áfram kalt í veðri.
Veður Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjá meira