Skoðun

Tölvupóstsskrímslið

Sigríður Víðis Jónsdóttir skrifar
Stundum ætlar stórt tölvupóstsskrímsli að éta mig. Vinnupósturinn stoppar ekki. Sumir tölvupóstsdagar eru hins vegar hressari en aðrir. Sem ég sat í vinnunni hjá UNICEF á Íslandi og sendi ábendingu á fjölmiðla um börn í sárri neyð á skjálftasvæðinu í Nepal barst athyglisverður póstur. Leiðtogar vopnaðra hópa í Mið-Afríkulýðveldinu höfðu samþykkt að sleppa öllum barnahermönnum og börnum sem tengdust hópunum: Mörgum þúsundum! Þeir höfðu líka samþykkt að hætta alfarið að nýskrá börn inn í herflokkana. UNICEF hafði yfirumsjón með samkomulaginu og hafði lengi unnið að þessu. Jess!

Annar póstur barst: Suður-Súdan, eitt fátækasta ríki heims, hafði fullgilt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Hann er grunnurinn undir allt sem UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, gerir. Núna höfðu öll ríki Sameinuðu þjóðanna nema Bandaríkin fullgilt þennan stórmerkilega sáttmála.

Dagurinn leið. Ljósmyndir bárust frá samstarfsfólki hjá UNICEF í Nepal af risavöxnu bólusetningarátaki sem var nýhafið á skjálftasvæðinu. Mikilvægt var að reyna að koma í veg fyrir að mislingafaraldur brytist þar út. Markmið átaksins var að ná til meira en hálfrar milljónar barna hið fyrsta. Gott mál.

Klukkustund síðar: Hvísl barst frá samstarfsmanni erlendis um að nokkrum dögum seinna myndi formleg yfirlýsing vera gefin út um að Líbería væri laus við ebólu: Landið sem varð verst úti í faraldrinum. Vó, frábært! Í baráttunni við ebólu hafði UNICEF meðal annars tekið þátt í að skipuleggja heimsóknir á yfir 400.000 heimili til að fræða fólk um hvernig koma mætti í veg fyrir smit og hvað ætti að gera ef smit kæmi upp. Rætt hafði verið við fleiri en eina milljón manna.

Í lok dags hringdi kona í Reykjavík sem er heimsforeldri hjá UNICEF og vildi hækka mánaðarlegt framlag sitt. Spurði hvort stuðningurinn kæmi ekki örugglega að gagni. Ég játti því og sagði að dagsverk hennar væri einhvern veginn svona: Hún hefði tekið þátt í varanlegum umbótum fyrir börn í Mið-Afríkulýðveldinu, stutt neyðarhjálp í Nepal og tekið þátt í ebólubaráttu sem væri löngu horfin úr fjölmiðlum. Auk þess að leggja sitt á lóð á vogarskálarnar svo UNICEF gæti barist fyrir réttindum barna – alltaf, alls staðar.




Skoðun

Sjá meira


×