Söguleg ummæli á sögulegum tímum Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar 22. apríl 2015 12:00 Undanfarið hef ég haft það á tilfinningunni að samfélagið hafi sett í bakkgír. Það sé alls ekkert árið 2015 heldur séum við rétt að skríða yfir aldamótin nítjánhundruð. Allavega ekki komin langt fram á tuttugustu öldina. Af hverju er ég að segja svona vitleysu? Hvernig er hægt að tala um afturför á öld snjallsíma og internets, læknavísinda og rafmagnstannbursta? Þetta er bara einhver tilfinning. Mér finnst bara eitthvað gamaldags í gangi, að einhver úrelt stemming svífi yfir vötnum. Ég fæ þetta til dæmis á tilfinninguna þegar Framsóknarflokkurinn er eitthvað að vasast, sendir bréf til útlanda og tilkynnir eitthvað fyrir mína hönd þvert á loforð um annað, skipar rasista í mannréttindaráð eða dregur fram áratugagamlar teikningar Guðjóns Samúelssonar til að byggja eitthvað þjóðernislegt við Austurvöll, eða vill senda alla múslíma til Sádi-Arabíu og sitthvað svona. Fæ þetta líka á tilfinninguna þegar ég horfi á viðtöl í sjónvarpinu við fólk sem hefur í fullri alvöru áhyggjur af útrýmingu hvíta kynstofnsins og vill flokka heiminn niður í lönd eftir lit. Svo er ég einhverra hluta vegna alltaf að sjá myndir á Facebook af veiðimönnum stilla sér upp með nýskotnum gíraffa, svona svolítið eins og safaríveiðimenn árið 1901, en kannski hefur það alltaf verið. Ég fæ líka þessa tilfinningu um að samfélaginu fari aftur þegar ég sé fólk stofna hópa á samfélagsmiðlum til að mótmæla hinsegin fræðslu í skólum! Já, já, það er til fólk sem sér ástæðu til þess að mótmæla því. Las nokkur ummæli hlustenda útvarps Sögu þeirrar skoðunar, sem tekin höfðu verið saman á Nútíminn.is. Ég gat ekki sett þau í samhengi við árið 2015. Vildi hreinlega að ég hefði ekki lesið þau, varð bara leið og yfir mig helltist tilfinningin um eitthvað úrelt. Getur það verið að á framfara- og tækniöld fyrirfinnist svona ótrúleg þröngsýni? Það er auðvitað kaldhæðið að þessi viðhorf komist svo rækilega til skila einmitt fyrir tækniundrið internetið og kannski er það gott. Ég vona bara að þessi viðhorf einskorðist við fámennan hóp. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Ragnheiður Tryggvadóttir Mest lesið Þúsund milljarða högg á ríkissjóð – svartasta sviðsmyndin á Nýjum Landspítala Sigurður Sigurðsson Skoðun Af hverju fjölgar öryrkjum? Svarið er ekki það sem þú heldur Sisa Berglind Kristjánsdóttir Skoðun Um rektor tala ég ekki Óttar Kolbeinsson Proppé Skoðun Sykursýki 2 orðin að heimsfaraldri Anna Lind Fells Skoðun Íslenskt rafmagn á alþjóðlegum markaði Tinna Traustadóttir Skoðun Þar sem er reykur, þar er eldur Helgi Áss Grétarsson Skoðun Sterkara Austurland – saman, ekki sitt í hvoru lagi Erlendur Magnús Jóhannsson Skoðun Aðgerðir gegn ofbeldi meðal barna Eygló Harðardóttir Skoðun Sannleikur óskast! Ágústa Árnadóttir Skoðun Úkraína - 24. febrúar 1956 og 2022 Erlingur Hansson Skoðun
Þúsund milljarða högg á ríkissjóð – svartasta sviðsmyndin á Nýjum Landspítala Sigurður Sigurðsson Skoðun
Þúsund milljarða högg á ríkissjóð – svartasta sviðsmyndin á Nýjum Landspítala Sigurður Sigurðsson Skoðun