Hentu tólf flóttamönnum fyrir borð stefán rafn sigurbjörnsson skrifar 17. apríl 2015 07:00 600 flóttamenn komu til Sikileyjar í gær. vísir/AFP
Lögreglan á Ítalíu handtók fimmtán múslimska flóttamenn í gær eftir ásakanir um að þeir hefðu fleygt tólf kristnum flóttamönnum fyrir borð á bát sem siglt var yfir Miðjarðarhafið. Þetta kemur fram á vef BBC. Til átaka á að hafa komið á milli múslima og kristinna manna á bátnum sem endaði með ódæðinu. Talið er að allir mennirnir sem var hent fyrir borð séu látnir. Þá fórust fleiri en 40 flóttamenn í gær þegar gúmmíbátur þeirra sökk eftir að hafa siglt frá Líbíu. Fáeinir eftirlifendur greindu lögreglunni á Ítalíu frá því að í bátnum hefðu verið 45 manns frá nokkrum Afríkuríkjum. Ítalski sjóherinn bjargaði þeim ásamt rúmlega 600 öðrum flóttamönnum úr öðrum bátum og kom þeim fyrir á Sikiley í gær. Talið er að um 500 flóttamenn hafa farist á Miðjarðarhafi það sem af er árinu en fyrr í vikunni hvolfdi bát með 400 flóttamönnum. Tíu þúsund flóttamönnum hefur verið bjargað á Miðjarðarhafi undanfarna daga en ítölsk yfirvöld kalla eftir aukinni aðstoð frá Evrópusambandinu til að taka á vandanum.
Flóttamenn Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Fleiri fréttir Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Sjá meira