Ég, Bubbi og Hrafn Gunnlaugsson Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar 25. mars 2015 07:00 Nei, hættu nú alveg, hefur líf mitt byggst á tómri lygi? Í bráðum fjóra áratugi hef ég gengið út frá því að ég hafi fæðst undir merki Tvíburans, eins og Bubbi Morthens og Hrafn Gunnlaugsson. Mínir helstu kostir hafa því samkvæmt því átt að vera fjölhæfni, greind og leiftrandi hugsun. Ég á að vera hrifin af nýjungum og á að geta gert marga hluti í einu. Ég á að vera forvitin og alltaf á ferð og flugi. Út frá þessu hef ég gengið þar til í gær. Þá kom það víst á daginn að 86 prósent fólks telja sig vera í öðru stjörnumerki en það raunverulega er og þar á meðal ég. Staða stjarnanna gagnvart jörðinni hefur víst breyst í aldanna rás, auk þess sem stjörnumerkin eru ekki tólf heldur þrettán. Það er eitthvert stjörnumerki til sem heitir Naðurvaldi, já, Naðurvaldi. Naðurvaldi er þó ekki mitt rétta stjörnumerki, samkvæmt nýjustu tölum, heldur Naut. Nautið er ekkert hrifið af nýjungum, nautin eru víst íhaldssöm, stöðuglynd og þrjósk og lengi að taka ákvarðanir. Þau eru líka skapbráð, langrækin, afbrýðisöm og ógerlegt að fá þau til að skipta um skoðun ef þau hafa einu sinni bitið eitthvað í sig. Frábært. Ég er leiðindadurgur. Ekki það að Tvíburinn sé eingöngu hlaðinn kostum, ég get alveg viðurkennt það. Reyndar er hann sagður óáreiðanlegur og fljótur að gleyma loforðum. Í ofanálag er hann síblaðrandi og yfirborðskenndur og gerir nánast allt til þess að forðast lognmollu og leiðindi. Nautiðer orðheldið. Það er ekki líklegt til að gleyma loforðum sem það gefur þar sem Naut eiga að hafa gott minni og enn frekar eru þau trygglynd og þolinmóð. Naut eru sögð kunna að njóta lystisemda eins og matar og hafa næmt auga fyrir fegurð og listum. Nújæja, kannski á ég eftir að taka Nautið mig í sátt. Þetta þýðir þó að ég er ekki lengur í sama merki og Bubbi Morthens og Hrafn Gunnlaugsson. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ragnheiður Tryggvadóttir Mest lesið Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun