Svona er staðan á HM-strákunum okkar Íþróttadeild 365 skrifar 13. janúar 2015 06:30 Aron Kristjánsson hefur í nokkur horn að líta fyrir HM. Vísir/stefán
Strákarnir okkar spiluðu fimmta og síðasta æfingaleikinn í aðdraganda HM 2015 í Katar á sunnudaginn þegar liðið gerði jafntefli við Slóveníu. Í dag tekur við ferðalag til Katar þar sem lokaundirbúningur hefst fyrir leikinn gegn Svíum. Íslenska liðið lítur ágætlega út, þó mun betur eftir að Aron Pálmarsson kom inn á móti Dönum þar sem hann deildi út stoðsendingum eins og hrískökum í barnaafmæli.Sjá einnig:Lítill púki í Gaupa | Myndband Sóknarleikurinn er allur að koma til, en liðið skoraði yfir 30 mörk gegn sterkum liðum Dana og Slóvena. Varnarleikurinn er aftur á móti mikill hausverkur og markvarslan líka áhyggjuefni. Vörn og markvarsla eiga þó oftast samleið og sé vörn í lagi verja strákarnir í rammanum sín skot. Ísland er með leikreynt byrjunarlið með þrjá af bestu leikmönnum heims í þeim Guðjóni Val Sigurðssyni, Aroni Pálmarssyni og Alexander Peterssyni. Snorri Steinn og stórvinur hans Róbert Gunnarsson hafa svo upplifað þetta allt áður. Þetta verður að stóru leyti spurning um hvernig hinir strákarnir mæta til leiks.Sjá einnig:Rúnar: Ætla ekki að taka Markussen á þetta Fréttablaðið tekur hér stöðuna á öllum 17 leikmönnum liðsins sem fara með til Katar. Kostir og gallar þeirra eru dregnir fram og hvernig frammistaða þeirra hefur verið í undirbúningsleikjunum. Sumir líta mjög vel út og virðast tilbúnir að sigra heiminn fyrir þjóðina enn eina ferðina, en aðrir eiga lengra í land og hafa mikið að sanna þegar komið verður á HM.HM-strákarnir okkar 2015:Björgvin Páll Gústavsson Aðalmarkvörður liðsins lítur einfaldlega ekki nógu vel út. Varði aðeins 13 prósent þeirra skota sem hann fékk á sig gegn Dönum og 22 prósent gegn Slóvenum, þó innkoma hans undir lokin hafi verið sterk. Verður að vera mun stöðugri, annars mun Aron byrja flesta leiki.Aron Rafn Eðvarðsson Var litlu skárri en Björgvin gegn Slóvenum en stóð sig vel gegn Dönum þar sem hann varði ríflega 40 prósent þeirra skota sem hann fékk á sig. Ekki enn nýtt sín tækifæri til fulls. Verður, eins og Björgvin, að vera stöðugri.vísir/ernirGuðjón Valur Sigurðsson Var ekki með á æfingamótinu um helgina en það skiptir engu máli. Fyrirliðinn með 304 leiki og yfir 1.600 mörk á bakinu fyrir utan að vera besti vinstri hornamaður heims. Verður alltaf klár.Stefán Rafn Sigurmannsson Sýndi frábæra takta og heilsteyptan leik á báðum endum vallarins þegar hann fékk tækifærið í fjarveru Guðjóns Vals. Með afburða skotnýtingu og svo sannarlega arftaki fyrirliðans.vísir/stefánAron Pálmarsson Lykillinn að árangri Íslands á HM. Það sá hvert mannsbarn hversu miklu máli hann skiptir í leiknum gegn Dönum. Virðist vera mikill hugur í Aroni sem ætlar sér stóra hluti í Katar. Vera hans á vellinum gerir aðra betri og opnar dyr sem annars eru lokaðar.Arnór Atlason Slakur í undirbúningnum og gengur ekki heill til skógar eins og hann hefur staðfest sjálfur. Býr vitaskuld yfir miklum leikskilningi, en vantar þann kraft sem hann hefur búið yfir undanfarinn áratug. Er mjúkur, hægur og engin ógn stafar af skotum hans. Skoraði ekki í fjórum skotum gegn Slóvenum og Dönum.vísir/ernirSigurbergur Sveinsson Býr yfir miklum sprengikrafti og er óhræddur við að reyna að stökkva yfir varnir eða spóla sig í gegnum þær. Tekur oft slakar ákvarðanir og hangir of lengi á boltanum. Verður ekki sakaður um að reyna ekki. Hann getur komið sterkur inn í leiki en líka verið mistækur.Snorri Steinn Guðjónsson Heilinn í liðinu – þjálfarinn á vellinum. Keyrir kerfi liðsins af sömu fagmennsku og alltaf. Bindur liðið saman og er því gríðarlega mikilvægur. Ekki búast við skotum þó hann skori mikið í Frakklandi. Leikur hans með Íslandi er allt annar.Gunnar Steinn Jónsson Verður væntanlega 17. maður og horfir á flesta leiki úr stúkunni. Er í baráttu við Arnór, Aron, Snorra og Sigurberg um stöðu; þrír þeirra geta spilað skyttu og þrír stöðu leikstjórnanda. Heillaði ekki í undirbúningi fyrir mótið og kom valið á honum á óvart.vísir/ernirAlexander Petersson Ekki verið eins ferskur lengi. Ótrúlegur kraftur og skotnýtingin til fyrirmyndar. Þar hjálpar til innkoma Arons, en saman mynda þeir ógnvænlegt skyttupar. Getur líka búið sér til sín eigin skot með hráum krafti. Einn af betri bakvörðum heims í varnarleiknum og einhver flottasti alhliða leikmaður í bransanum.Ásgeir Örn Hallgrímsson Eins og alltaf traustur varnarmaður og leysir sitt hlutverk nokkuð vel en ekkert meira en það. Sóknarleikurinn verður æ veikari; kraftlaus og doði yfir honum. Verður stundum farþegi í liði sem hann á að vera einn af reynsluboltunum í. Farinn að tapa of mörgum boltum.Arnór Þór Gunnarsson Pressa á honum á stóra sviðinu í fyrsta skipti. Leikmaður á stöðugri uppleið sem virðist vera andlega sterkur eins og sjá má á vítanýtingu hans. Lyktar eins og óvænt stjarna mótsins. Hornastaðan er hans að læsa næstu árin. Aðeins hann getur klúðrað því.vísir/stefánSverre Jakobsson Svanasöngur Sverre. Spilaði betur um helgina en leikirnir gegn Þýskalandi gáfu til kynna. Reynslubolti sem kann öll fræðin. Ef farið er rétt með hann og mínúturnar valdar rétt getur hann kvatt landsliðið með góðri frammistöðu og verið lykilmaður í vörninni.Bjarki Már Gunnarsson Enn á uppleið en ekki kominn alla leið. Frammistaðan í undirbúningnum verið misjöfn en inn á milli sjást kaflar sem lofa hrikalega góðu. Nautsterkur og hreyfanlegur, en er stundum plataður úr stöðu.vísir/ernirKári Kristján Kristjánsson Kemur með aðra vídd og meiri þyngd inn á línuna þegar á þarf að halda. Er eins og allir miklu betri með Aron inni á vellinum. Getur búið til færi fyrir sjálfan sig og aðra. Hefur tekið færin sín vel og lítur vel út.Vignir Svavarsson Mun meiri ábyrgð á honum í miðjublokkinni en oft áður þar sem mínútum Sverres fer fækkandi. Litið misvel út í vörninni og tilraunir með hann í sóknarleiknum gengið upp og ofan. Er fyrst og fremst varnarmaður í landsliðinu.Róbert Gunnarsson Eftir mikla þurrkatíð inni á línunni rignir nú aftur mörkum með innkomu Arons Pálmarssonar. Aron veit hvar hann er, Róbert veit hvar boltinn kemur og allir vita hvernig það samstarf enda; mark eða víti. Sjálfstraustið sem hefur einkennt hann virðist komið aftur. Byrjaður að skora „Robbamörk“ á ný.
HM 2015 í Katar Mest lesið Strákarnir okkar spila HM þar sem Íslendingar eru dáðir og dýrkaðir Handbolti Nýr kynjakvóti FIFA: Öll kvennalandslið verða að hafa kvenþjálfara Fótbolti „Höfum gleymt ástæðunni fyrir því að VAR var tekið upp“ Enski boltinn Reglur sem landsbyggðarlið vildu og Þór þarf að greiða hundruð þúsunda Körfubolti Rafmagnað klúður í brasilíska fótboltanum Fótbolti Mögulegt að sjö efstu komist í Meistaradeild Evrópu Fótbolti Rekinn úr íranska landsliðinu Fótbolti „Vona bara að landsliðsþjálfarinn hafi verið að horfa“ Körfubolti Mainoo og Maguire snúa aftur en enginn Alexander-Arnold Fótbolti 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Íslenski boltinn Fleiri fréttir Janus fær ekki að leika listir sínar í Las Vegas Strákarnir okkar spila HM þar sem Íslendingar eru dáðir og dýrkaðir „Vörnin var ekki nægilega góð og við eigum inni þar“ „Verðum að ná sigri í þessu verkefni“ Uppgjörið: Ísland - Svíþjóð 33-35 | Appelgren gerði útslagið Bronslið Dags Sig burstaði Svisslendinga í fyrsta leik eftir EM Frábært að sleppa við austantjaldið Heilluðust af Ölfu Brá á HM og sömdu við hana Mætir með vænt glóðarauga: „Þetta var smá barningur“ Berta Rut snýr heim í Hauka Deildarmeistarar Vals unnu nauman sigur fyrir norðan Uppgjörið: Stjarnan - Fram 34-34 | Stjarnan heldur lífi í fallsætisbaráttunni „Ekki endilega það sem maður vildi“ Leiðtoginn Sigvaldi fer til Þýskalands Alfreð með skýrt svar: „Þeir verða að ráða framhaldinu“ Strákarnir okkar slógu í gegn í Smáralindinni „Allt of snöggur og óvæntur endir“ Hægt að hitta handboltahetjurnar í dag Enginn slaki gefinn Hótar eigin leikmönnum og þjálfurum Ísak dró sig úr hópnum gegn Svíum VIP-miðar í boði til að komast nær strákunum okkar Viggó og Andri fengu skell gegn meisturunum Nýbakaði faðirinn með níu mörk Íslendingaliðið úr leik eftir tap í undanúrslitum Víkingur Reykjavík upp í Olís deildina „Þetta er ekki búið“ Sara Dögg í miklum ham er ÍR styrkti stöðu sína Valur - Fram 32-31 | Risaleikur Lovísu kláraði Fram „Hefði verið leiðinlegt að skora öll þessi mörk og tapa“ Sjá meira